17.9.2008
Dramablogg!
Ég var að tala um kjólana mína í gær! Að vísu voru það huglægu kjólarnir mínir og raunverulegu kjólunum mínum fannst þeir vera smá útundan!
Mér finnst gaman að klæða mig í kjóla og pils - á heilan helling af kjólum og annað eins af pilsum sem ég geng mikið í og ekki bara vegna þess að ég er með flotta leggi Þeir eru í öllum sniðum og formum - og þá er ég að tala um kjólana mína ekki leggina....... sumir skrautlegir aðrir ekki........ margir rauðir Yfirleitt fer ég í einn í einu og reyni að lúkka dálítið eins og mér finnst vera flott!
....og þá erum við komin að dramanu! Ég þarf alltaf að vera í sokkabuxum við! Það kemur til af því að ég bý - eins og margir vita - á Íslandi! Á sumrin slepp ég nokkuð billega þá get ég smokrað mér í leggings - á nokkrar sem enda á blúndu og allir eru sáttir! Á veturnar þyngist róðurinn. Í morgun þurfti ég til dæmis að opna sokkabuxnaskúffuna mína! Ég á sokkabuxur í öllum regnbogans litum! Þær eru silfurglimmer, svartar, rauðar, köflóttar, bleikar, mislitar, röndóttar..... ég gæti þulið lengi!
Ég horfði á þær og þær glottu á móti mér. Vissu sem var að þeirra tími var að renna upp! Málið er að þær snúast alltaf einhvern veginn fáránlega í höndunum á mér þegar ég klæði mig í þær! Barátta mín við nylon er efni í aðra færslu...... Enda er ég lööööngu búin að játa mig sigraða þar! Kona verður nú að þekkja sín takmörk
Ég veit ekki hvað skeður en ég enda alltaf frekar pirruð. Ekki bætir svo úr skák þegar ég er að koma úr sundi líka! Muniði í gamla daga þegar maður sat sveittur á bekknum og reyndi að troða sér í fargins sokkabuxurnar sem mamma heimtaði að ég væri í innan undir buxunum? Það endaði iðulega á því að þær snéru ofugt þegar ég var loksins komin í þær og ég fór úr þeim aftur og henti þeim ofan í tösku
Ég hef ekki vaxið upp úr þessu tímibili! Eru námskeið þar sem konum er kennt hvernig sokkabuxur eigi að snúa? Er þetta ekki einhver fötlun? Á ég ekki ábyggilega rétt á bótum?
Athugasemdir
Ohh man eftir sokkabuxunum innan undir buxur í den.
En annars er miklu hlýrra að vera í leggings þegar vetrar, ferð bara í nylon hnésokka og leggings yfir. Þannig er ég klædd í dag + kjólinn Voða komfý
M, 17.9.2008 kl. 13:25
M! Það mætti skoða þessa lausn!!
Ditta! Þessa líka
Hallgerður! Hvaða far?
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 14:32
Hrönnslan mín.... Ég sem iðjuþjálfi get boðið þér upp á einkanámskeið til að ráða bót á þessu færnivandamáli þínu.... við iðjuþjálfar búum svo vel að búa yfir sérþekkinga á hjálpartækjum sem vinna bug að svona smámáli..... nebbla "sokkaífæru"... kem færandi hendi til þín með eina slíka eftir að ég hef komið við í hjálpartækjamiðstöðinni i Kópavogi..... hafðu það á meðan.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 17.9.2008 kl. 15:57
Sokkaífærur? Ganga þær fyrir batteríum? Hljómar ekki illa....
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 16:08
Auðvitað áttu rétt á bótum, get alveg sent þér eina ef þú átt enga sjálf.
Þröstur Unnar, 17.9.2008 kl. 16:34
þær eru eiginlega rafknúnar... er það vandamál??
Fanney Björg Karlsdóttir, 17.9.2008 kl. 16:39
Nei nei við reddum því! Breytum þeim bara
Þröstur! Áttu bót?
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 17:13
Úff...ég næ ekki andanum í sokkabuxum...fæ köfnunartilfinningu og martraðareinkenni....
Mæli með leggings frekar og þá hnésokkum úr næloni....það er snöktum skárra....
Það er spurning hvort sokkabuxnafötlun sé bætt af TR??....
Bergljót Hreinsdóttir, 17.9.2008 kl. 17:23
Jesús minn..... í mínum huga þá eru þessar rándýru nælonsokkabuxur einnota, það kemur gat á þær áður en ég er komin almennilega í þær.
Veit ekki með bætur..... prófaðu að nefna þetta við Jóhönnu.
Linda litla, 17.9.2008 kl. 17:33
með batteríum,ífærur .Ég verð ekki mikið eldri
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 17:35
einmitt ástæðan fyrir því að ég er alltaf í buxum ... er með ofnæmi fyrir sokkabuxum
Rebbý, 17.9.2008 kl. 18:39
Mikið rosalega fer ég á mikið samkenndartripp við að lesa þetta. Ég fæ líka köfnunartilfinningu í sokkabuxum eins og Bergljót og get maximalt pínt mig í þeim í 3-4 tíma. Ég enda líka alltaf mjög tæp á taugum eins og þú Hrönn, eftir þá þolraun að troða mér í þær. Sokkaífæran hennar Fanneyjar hljómar eins og frelsandi enginn. Stendur maður þá bara og bí, bí og blaka, buxur á réttum stað inna sekúndu? Hver er millitíminn við þetta? Hrönn og Fanney, stofnum sokkaífærufélagið.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.9.2008 kl. 20:38
Bætur? Á sokkabuxur? Eh... Hérna.... sko... ég veit ekki með ykkur... en að sjá álímdar gúmmíbætur ... á sokkabuxum.... er ekki *alveg* það sem mig langar að sjá fyrir mér!
Annars ætti ég að lesa mig um tvisvar áður en ég kommenta... ég las kommentið frá henni Bergljótu sem ... "ég næ ekki ENDANUM í sokkabuxum" ... Enda? Hvaða enda? (Meina... endi og andi... nánast sama orðið!)
Hmm... spurning um að útfæra "sokka-buxna-ífæru-apparats-græjuna", og nota 9 volta batterí í það?
Einar Indriðason, 17.9.2008 kl. 20:49
Ég fer örsjaldan í sokkabuxur og ríf mig úr þeim um leið og ég get. Svo heita það gammosíur en ekki leggings. Höldum í íslenskuna.
Helga Magnúsdóttir, 17.9.2008 kl. 21:10
úff finnst nælonsokkabuxur óþægilegasti klæðnaður sem til er enda engin kjólakona heldur en á samt slatt af pilsum og nota þá gammosíur sem eru mun þægilegri og þarf ekkert tæki til að troða mér í þær og þær snúa alltaf rétt
Brynja skordal, 17.9.2008 kl. 22:03
Sokkabuxur eiga að vera fyrir vitum fólks áður en það leggur til atlögu!
Þú varst eins og prinsessa í boðinu, langflottust að hinum fögru ólöstuðum. (svo verð ég að viðurkenna að myndin, jú nó ... er ekki birtingarhæf í Séð og Heyrt. Vona að hazarfréttamenn dekódi ekki meilið mitt) ... annars bara nokkuð svöl eftir, nudd og pottaferð, svo bíóferð og barferð og svo ökuferðin heim sem tókst snilldarlega hjá mér þrátt fyrir sokkabuxur fyrir vitum .....
Sennilega verið eins og sjóræningi með klofbót á hægra auga!
( ............ )
www.zordis.com, 18.9.2008 kl. 03:29
OMG! Ég tók góðan slag í morgun við sokkabuxur þegar ég ákvað að mæta í pilsi í vinnuna og veðrið bauð ekki uppá bera leggi. Það var sko örugglega karlmaður sem fann þessa flík upp :)
Vilma Kristín , 18.9.2008 kl. 12:24
Ég lausnaði vandann! - takið eftir nýyrðinu ;) Ég fór í gammosíur og var í útiklefa!
Annars er ég ekki sammála því að leggings séu gammosíur. Gammosíur ná mér niður á ökkla þ.e. eru ekki með sokkum en leggings ná rétt niður á kálfa! Spurning um að íslenzka þetta orð leggings?
Einhverjar tillögur?
Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2008 kl. 12:29
Zordis! Takk Mér finnst svo gott að fólk taki eftir því að ég er prinsessa
Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2008 kl. 12:37
skammasíur sokkapínur. Mjög skemmtileg lesning, þetta með gammóurnar, þar er ég sammála, þetta eru ekki leggings! En gangi þér vel í sokkabuxnaslagnum
Unnur R. H., 18.9.2008 kl. 13:49
Heyrðu þetta með íslenskt yfir leggings, LEG SINS hehe
Unnur R. H., 18.9.2008 kl. 13:49
Síð pils eru mín eftirlæti, bjarga mér frá sokkabuxum og áhorfendum frá leggjaáhorfi.
Sigrún Jónsdóttir, 18.9.2008 kl. 16:33
Stutt pils eru mitt eftirlæti..............
Þröstur Unnar, 18.9.2008 kl. 16:40
...............áhorfið mælist ekki.
Þröstur Unnar, 18.9.2008 kl. 16:41
afsakið, hjélt ég væri á Jennýar síðu.
Þröstur Unnar, 18.9.2008 kl. 16:42
Unnur! Góðar tillögur
Sigrún
Þröstur! Þú heppinn ég get lánað þér nokkur stutt pils......
Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2008 kl. 21:00
Er ekki bara íslenska orðið yfir "leggings"......... "löppur"
Ok... sorry, bara svefngalsi.
Góða nótt og sofðu vel.
Linda litla, 18.9.2008 kl. 21:48
Löppur? Hljóma ekkert rosa sexý............
Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2008 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.