16.9.2008
Drastiskar ákvarðanir
Ég hef tekið þá ákvörðun að skrifa ekki athugasemdir við pistla hjá fólki sem veltir sér upp úr rasisma né hjá þeim sem rugga sér í neikvæðni daginn út og daginn inn!
Ætla að hafa sama háttinn á og við fréttir. Hlusta ekki og tek þar af leiðandi ekki þátt!
Þar hafið þið það! Afdrifarík ákvörðun fyrir ykkur sem missið af mínum hnitmiðuðu - skorinyrtu að ég tali nú ekki um skemmtilegu athugsemdum!
Ég nenni ekki lengur að hlusta á ykkur tjá ykkur miður fallega. Ekki orð um það meir.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Hvaða árstími finnst þér skemmtilegastur?
Sumar 22.2%
Vetur 22.2%
Vor 20.0%
Haust 35.6%
45 hafa svarað
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Vott vúman, ætlarðu ekki að taka þátt þegar ég læt gullkornin hrynja af fingrum mínum?
Neh, þú ert ekki að meina mig. Þú elskar mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.9.2008 kl. 15:41
Þeir taka það til sín sem eiga það!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 15:42
Auli
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.9.2008 kl. 15:46
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 15:52
Jákvæðnijöfnun. Bara fínt mál. Þannig að ... ég veit þá fyrirfram, að ég fæ ekki komment frá þér þegar ég er að pirrast? En... á sama hátt, þá muntu kommenta hjá mér, ef ég pirrast ekki?
Einar Indriðason, 16.9.2008 kl. 15:57
Jebb Einar! Ég vel samt hvaða pirring ég hunsa ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 15:58
Þetta er nýtt hugtak og ég tek þátt í því. Þetta heitir pirringsjöfnun og hefur ekkert með tíðahring kvenna að gera !
Átakið mun kallast máttur hugsandi flóns
Ragnheiður , 16.9.2008 kl. 16:01
Sammála En sé bara hálfa færsluna bvítans Nova merkið er inn á færslunni hjá þér hummmm hver er að fikta í þessu
Brynja skordal, 16.9.2008 kl. 16:05
Trúðu á hjarta þitt og þá góðvild sem í því býr.Mun allt ganga vel.Því Guð býr ekki í vondu hjarta. Semdu sögu lífs þíns sjálf(ur). Láttu ekki aðra gera það fyrir þig.Láttu þér fátt um finnast hvað aðrir segja um þig það ert þú sem ert stjórnandinn.
Þú finnur ekki frelsið ef þú setur þér ekki takmark.Fyrir utan er líf af hörðustu gerð.Þú breytir því ekki, því einu sem þú breytir er þú sjálfur.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 16.9.2008 kl. 16:27
Mér finnst betra að velta mér upp úr raspi og bera síðan kensl á mig.
Þú ert ágæt og láttu mig í friði.
Þröstur Unnar, 16.9.2008 kl. 16:34
Gott nafn á átakin Ragga
Örugglega eru þeir hvítir, bláeygir, aríar hjá Nova Brynja
Ditta
Takk Anna Ragna! Flott mynd
....en Þröstur ég er rétt að byrja
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 16:51
Skilgreindu rasisma.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.9.2008 kl. 17:02
Hverslaxa er þetta Hrönsla mín.
Knús darling.
Kristín Katla Árnadóttir, 16.9.2008 kl. 17:13
No problem! Rasismi er það að tala alltaf og endalaust illa um útlendinga! Ætla þeim ávallt hið versta og hafa ekkert langlundargeð gagnvart þeim sem eru kannski ráðvilltir og vegalausir í ókunnu landi!
Þeir sem hrópa hátt og snjallt á torgum - standandi uppi á kössum!
Þeir sem gefa útlendingum aldrei neina sénsa og eru svo heilagir í eigin skinni að þeir þola ekkert sem heitir önnur menning en þeirra eigin!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 17:22
Skil þessa ákvörðun mjög vel. Tók strax um það ákvörðun að kommenta ekki við færslur um trúmál og útlendinga. Sjálf mun ég sennilega aldrei hætta að skipta mér af launapólitík, en skil vel þá sem hætta sér ekki í þá umræðu
Sigrún Jónsdóttir, 16.9.2008 kl. 17:25
Við skilgreinum þetta á afar ólíkan hátt. Enda afar ólíkar konur með afar ólíkar skoðanir á hinum ýmsu hlutumeins og gengur. En hér skiljast þá væntanlega leiðir og ég kveð þig með kurt og pí og segi æ lov jú. Á eftir að sakna þín. Umburðarlyndi mitt er ekki klætt í kjól sem myndi finnast í þínum fataskáp.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.9.2008 kl. 17:33
Nei mér sýnist ekki
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 17:35
...og eru þó margir kjólar í mínum skáp!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 17:49
Gaman gaman. Er þetta ekki konan sem var bönnuð að hluta á mlb?
Þröstur Unnar, 16.9.2008 kl. 18:10
hæhæ!
Takk fyrir heimsóknina í gær Verð ekki heima í kvöld. En annað kvöld skal ég hella upp á gott kaffi og þá spáum við í hlutina!
Sigurlín (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 18:15
Já ég gæti fengið kjól hjá þér, það er ljóst.
Ég hef verið kölluð A**I á blogginu, ég vil meta hvern mann að sínum verðleikum. Það skiptir mig engu hvort viðkomandi er þessa eða hinslenskur, kall eða kelling...fólk á að fá sjéns
Ragnheiður , 16.9.2008 kl. 18:15
Vona að þú ratir í sparikjól og hafir meððér náttkjól því svo virðist sem allir beddar standi þér á gátt.
....
Gott að gera bara það sem kona vill án þess að vera með veður!
www.zordis.com, 16.9.2008 kl. 18:21
ég sem var að uppgötva að ég er hálfur rasismi
Solla Guðjóns, 16.9.2008 kl. 18:29
Ég veit Solla! En það er alveg tvennt ólíkt að hafa heilbrigða skoðun á málefnum útlendinga eða það sem ég er að tala um!
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 18:35
Ég vil nú bara segja að lokum það sem ég hef sagt áður og segi áfram að segja: Skoðanir geta aldrei verið rangar - aðeins mismunandi mismunandi.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.9.2008 kl. 18:41
Frábært framtak :) góð leið til að halda sjálfum sér á jákvæðu hliðina er að vera ekki að velta sér uppúr neiknvæðni annara.
Uhhh... nú sit ég bara og vona að ég sé ekki ein af þessum neikvæðu og leiðinglegu... vona svo að ég eigi eftir að fá fleiri skemmtileg komment ;)
Vilma Kristín , 16.9.2008 kl. 19:16
gaman gaman Þröstur! aulinn þinn addna
Sigurlín! Ekkert mál - ég heimsæki bara manninn með svuntuna í staðinn
Nefnilega Ragga!
Zordis! Mér líst eiginlega bezt á að sofa hjá Nick af þeim tilboðum sem komið hafa fram og í ljósi umræðunnar hér.....
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 19:30
Það getur svosem, Helga Guðrún, alveg verið rétt! Það sem fer hinsvegar fyrir brjóstið á mér er hversu fólk er engan veginn tilbúið að gefa sénsinn sem mér finnst að allir eigi að fá! Hvort sem þeir eru íslenzkir, erlendir, karlar, konur eða börn!
Ennfremur vil ég ítreka það að mínar skoðanir eru ALLTAF réttar!
Þú ert svo alltaf velkomin að máta mína kjóla ef þér sýnist svo!
Vilma! Mér hefur nú ekki sýnst vera hætta á öðru
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 19:33
Katla! Ég sá þig ekki!! Knús á þig sjálfa darling
Hrönn Sigurðardóttir, 16.9.2008 kl. 19:33
allveg fyllilega sammála þér....eins og ALLTAF..... knús á þig..... í rauða kjólnum í brjáluðu veðri að viðra hundinn..... sko þú ert ekki..... ...en allveg gull af konu.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 16.9.2008 kl. 19:48
dúlludúskurinn minn.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 20:00
Ég vil að þú fáir fokkings friðarverðlaun Nóbels - sko eftir að ég er búin að fá´ann audda. Kúl dúd vúman.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.9.2008 kl. 20:01
jeiiiijjjjjjjjjjjjj frábært að eiga svona pirringsmæli eins og þig. Nú veit ég að ef þú kommentar hjá mér þá er ég í sæmilega jákvæðum gír allavega - ef ekki þá er best að fá einhvern til að sparka í minn stóra enda
Dísa Dóra, 16.9.2008 kl. 20:11
ahahahah... góð Dísa Dóra..... ég hafði ekki fattað þennan vinkil....
Fanney Björg Karlsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:16
Flott hjá þér. Maður getur sko alveg pirrað sig á einhverju öðru en að lesa misgáfuleg blogg hjá misgáfuðu fólki.
Helga Magnúsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:49
Semsagt.... Við setjum vísa eða mælistikur á Hrönnsluna... og ef hún mælist á mælistikunni, þá er ekki um pirring að ræða!
Snilld!
En, sko, hérna... þurfum við að kíkja undir rúmið hjá Hrönslunni?
Einar Indriðason, 16.9.2008 kl. 20:56
Semsagt ef þú setur ekki mark þitt á færslu hjá mér þá var ég neikvæð í það skipti? Dísa Dóra orðaði það vel.................................þú ert svona "pirringsmælir"
Ég er ánægð með þig
Huld S. Ringsted, 16.9.2008 kl. 21:03
Með pirringsmæli í hendi
hún mætti á svæðið
En fljótlega þó rann af henni
mesta æðið
Brattur, 16.9.2008 kl. 21:45
Mér finnst bara virðingarvert að taka svona ákvarðanir..... jákvætt bara, það er auðvitað aðalmálið.
Anna Einarsdóttir, 16.9.2008 kl. 23:03
Ég VEIT ég fæ friðarverðlaun Nobels
Fanney! Maður fer ekkert úr kjólnum bara til að viðra hundinn! Maður er nú einu sinni prinsessa!
Dísa Dóra! Þetta er þá ákveðið!
Nefnilega Helga! Það er líka hægt að gera svo margt betra við tímann sinn en reyna að leiða þessu fólki villu síns vegar! Miklu betra að gefa bara út eina yfirlýsingu!! Fólk veit þá á hverju það á EKKI von
Ég er líka ánægð með þig Huld!
Nei sko! Brattur búin að gera vísu um mig
Anna! Það er ekki nema von þú skiljir mig. Við deilum heila að einum þriðja
Annars var ég að koma yfir heiðina í ekki svo góðu veðri - ætla að skríða undir rúm sneggvast - ef vera skyldi að Einari dytti í hug að kíkja
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 00:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.