12.9.2008
Réttarstaða lambs!
Það var ævintýrablær yfir öllu í skóginum í morgun þegar við læddumst létt á tá - ég og hinir vitleysingarnir.......... Þokan lúrði yfir dagrenningunni, allt var kyrrt og hljótt og mér leið eins og ég væri stödd í miðri hryllingsmynd, það vantaði bara eins og eina uglu á grein.....
Ég fékk alveg brilliant hugmynd þar sem ég rölti á eftir hundunum - ég ætla að finna upp box sem stækkar og minnkar eftir þörfum! Spáið í nýtingarmöguleikana!! Það væri hægt að nota eitt og sama boxið undir títuprjóna og ferðatösku. Maður þyrfti aldrei að hafa áhyggjur af því að koma ekki öllu sem keypt er í útlöndum í töskuna - hún bara vex! Svo þegar hún væri tæmd þá minnkar hún niðrí ekki neitt! Tekur ekkert pláss í geymslu! Svo mætti jafnvel útvíkka konseptið og framleiða boxin í mörgum litum! Svona ef ég ætla að vera virkilega væld Mér finnst þetta alveg hrikalega góð hugmynd. Jafnvel betri núna en í morgun......
Snaraði mér svo í sundleikfimi - kona þarf að vinna upp glataða tíma Ég held að það sé einlægur ásetningur Betu að ég fái massavöðva á maga, rass og læri - þetta endar með því að ég verð há og grönn Ég þarf hreinlega að úða í mig mat allan daginn eftir tíma hjá henni - just in case ég hefði tapað einhverju af mínum dýrmætu grömmum!! Ég meina - ég er búin að vera lengi að safna......
Nú er yfir mér einhver værð! Ég er búin að raula, bæði innra með mér og upphátt, í allan dag einhvert ástarljóð sem ég man ekki einu sinni textann við........ En það gerir ekkert til ég bý hann bara til jafnóðum
Á morgun ætla ég í réttir! Horfa á aumingja litlu lömbin þar sem þau stökkva um alla rétt skelfingu lostin - hreint eins og lömb leidd til slátrunar............ og fulla kalla sem standa í hópum og syngja "Hvað er svo glatt.........." Hver veit nema bíllinn sem hefur réttarstöðu grunaðs bíls í mínum huga verði þar.......? Hann er merktur Stútungasaga og ég er sannfærð um að hann keyrir litlu lömbin þangað sem má ekki segja........!
Vonandi snjóar ekki..........
Athugasemdir
Þú ert svo unaðslega ofvirk og skemmtileg. Í guðanna bænum ekki fara á Ritalín. Heyri svo frá þér í réttunum .... Er með msn og e-mail í símanum. Love....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.9.2008 kl. 22:12
hey... þetta með töskuna er stolin hugmynd....... Mary Poppins var á undan...sorry..
en farðu varlega í réttunum rýjan mín...
Fanney Björg Karlsdóttir, 12.9.2008 kl. 22:22
....ég þekki ekki þessa Mary....... Það sem ég sé ekki það er ekki!!
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 22:23
Mary is dead og mér vitanlega fékk hún aldrei einkaleyfi á teygjanlegar töskur.
Drífa sig.
Dreifbýliskrúttið yðar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.9.2008 kl. 22:31
Syngið þér ein dreifbýlistúttan yðar, eða eru afnotendur.
Hver er Drífa sig?
Þröstur Unnar, 12.9.2008 kl. 22:34
Heyrðu ég skal vera fyrst til að kaupa af þér Box/töskuna alltaf vantað svona þú gerir mig glaða Ææ litlu fallegu Lömbin myndi sko ekki fara í þennan bíl ef ég væri þau það þarf að kenna þeim að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum en ég fer í réttir þann 20 og hlakka mikið til svo gaman í sveitinni að syngja það er svo glatt með góðu söngvatni hafðu góðar stundir um helgina Elskuleg
Brynja skordal, 12.9.2008 kl. 22:35
Þessi stækkanlegu og minnkanlegu box passa vel sem verkefni á rannsóknarstofuna mína. Þar erum við að finna upp og rannsaka allskonar hluti eins og regnhlíf fyrir fugla, egg án rauðu og margt fleira. Það er bara formsatriði að stofna rannsóknarstofuna en þegar það gerist ættirðu endilega að slást í hópinn!
Svo held ég að ég verði að bregða mér í sundleikfimi. Getur maður virkilega orðið hár og grannur? Það væri nú alveg brilliant að prófa það aðeins :)
Vilma Kristín , 12.9.2008 kl. 22:35
Jenný! Ég tala við Drífu Sig
Syng Þröstur! Viltu syngja með? Og ef svo er... Kanntu þá textann?
Brynja! Gott að geta reitt sig á neytanda
Vilma! Ég er alveg sannfærð um að það er hægt!! Og ég er með í rannsóknarstofunni - ekki spurning!!
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 22:46
Já.... þarna vantaði eitt smáorð! Vitaskuld syng ég ekki Þröstur Ég syng ein Þröstur.....
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 22:48
Okeis...... ég skal vera umbinn þinn. Svo má nýta þessa hugmynd enn frekar; fingravettlingar sem hægt er að stækka í tjald með 5 útskotum - útblásanlegir sko og hugs hugs köttur sem hægt er að breyta í tígrisdýr........ en ég ætla samt að hugsa það aðeins betur.
Geeeeeeeerðu það, má ég vera umbinn þinn ?
Anna Einarsdóttir, 12.9.2008 kl. 22:57
Þröstur Drífa sig er Ljósmóðir frá Akranesi og starfar í Vestmannaeyjum.
Aumingja litlu lömbin.................syngdu fallega fyrir þau, ég vil hafa kjötið meyrt
Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:33
okei okei Þú mátt vera umbinn minn..... Fyrst þú endilega vilt.....
Ég skal syngja fallega..... Ég vissi að einhver þekkti Drífu! Ertu með númerið hjá henni uppá að hringja í hana útaf dotlu leyfi...? Er svæðisnúmerið í Eyjum ekki 99?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 23:38
Hvað með bolta sem má stækka í kúluhús? Gæti leyst húsnæðisvanda margra á einfaldan hátt!! Svo vakna þeir á morgnana og stinga boltanum í vasann á leið sinni út?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 23:41
Trefil sem hægt er nota fyrir hraðbraut á nóttunni?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 23:49
Er ekki soldið leim að eiga flestar athugasemdir sjálfur á sínu eigin bloggi?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 23:50
Hrönn þú ert aldrei leim
Sigrún Jónsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:54
Hvað er alltaf verið að blanda aumingja Drífu Sig í málin hennar Hrannar..... Drífa Sig er allveg öldungis kona......en hefur enga heilsu í að standa í einhverju réttar veseni í grenjandi rigningu innan um grenjandi lömb og fulla kalla....
Fanney Björg Karlsdóttir, 13.9.2008 kl. 00:00
...enda er ekkert fé á fæti í Eyjum.... og því síður fullir kallar
Hrönn Sigurðardóttir, 13.9.2008 kl. 00:01
Og svona þegar ég spái í það þá er ég ekki viss um að það sé neitt fé yfirleitt í Eyjum..... Hringjum í Drífu og björgum henni í land! Hver er með vaktaplan ljósmæðra í Vestmannaeyjum?
Hrönn Sigurðardóttir, 13.9.2008 kl. 00:04
Ég er að vísu ekki viss um að við getum boðið henni neitt betri laun hér.... en hugsanlega betri börn?
Hrönn Sigurðardóttir, 13.9.2008 kl. 00:05
Flott nýja myndin mín kæra
Hlakka til að fá fréttir úr réttunum.
Marta B Helgadóttir, 13.9.2008 kl. 02:26
Pant fá svona tösku í svörtu takk. Fékkstu hugmyndina út frá svartholinu þínu ?
Klikkað gaman að hitta þig í vikunni eins og endranær og hlakka verulega til að hitta þig aftur þegar ég kem til baka úr fríinu. Vertu síðan góð við lömbin elskan.
Viku skammtur af knúsi á þig dúllurassinn minn.
Tína, 13.9.2008 kl. 06:36
Verður taskan svona instant taska? "just add water" ?
Einar Indriðason, 13.9.2008 kl. 09:25
uuuuu okey. Nú er best að skrifa hægt og ver ekki með snöggar og óvæntar hreyfingar því konan er gjörsamlega snar í uppfinningum sínum.
Ólöf Anna , 13.9.2008 kl. 12:05
Sundleikfimiblogg takk fyrir kaupi litlustórutöskuna þegar hún kemur í framleiðslu
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.