11.9.2008
Rútínan
...tekin við! Sem er gott
Það var svartamyrkur og álfarnir sváfu englasvefni þegar ég gekk um skóginn með vitleysingana á heimilinu. Ég setti þau bæði í endurskinsvesti - þannig að þau litu út eins og lögregluhundar á vakt- á meðan ég þræddi stíginn í myrkrinu algjörlega varnarlaus! Eins gott að það var enginn á ferðinni Enda er nú fyrir mestu að þau álpist ekki fyrir bíl - það er nefnilega frekar þannig að bílar álpist fyrir mig.....
Svo tók sundleikfimin við, þar sem ég hamaðist eins og veðurviti í norðaustangarra og flissaði frekar ódömulega þegar Ásdís ítrekaði að við ættum að passa okkur á því að hafa rassinn fyrir aftan bak... Bætir - hressir - kætir! Var það ekki slagorðið fyrir opal? Passar vel fyrir sundleikfimina líka - gæti komið í staðinn fyrir bláan opal
Nú sofa hundar eins og hráviði um víðan völl - annar undir ofni og hinn út við hurð! Allt er í dúnalogni og ég er farin að vinna.
Þakka þeim sem hlýddu
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Er ekkert verið að skríða undir rúm á vinnutíma?
Þetta hlýtur að vera eitthvað form að sjálfspyntingu að rjúka út í bítið með hundana.
Burrrrrrrrrrrrrrr
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 09:24
Ja sko Jenný ef svo væri þá hefði ég vit á að tala ekki um það
Hallgerður! Skemmtileg minning
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 09:29
Meiri dugnaður í þér hversdagskona!
Mætti ég biðja um eitt stk. bláan Opal
www.zordis.com, 11.9.2008 kl. 10:03
hehe rassinn fyrir aftan bak já - hmmmm verður maður að fara að laumast til að kíkja á ykkur í vatnsleikfiminni??!!
Dísa Dóra, 11.9.2008 kl. 10:33
Þetta ættu að vera einkunnarorð síðunnar þinnar;
Hrönn Sigurðardóttir, Bætir, hressir og kætir
Sigrún Jónsdóttir, 11.9.2008 kl. 10:36
-Er ekki hundurinn undir ofninum eins og ensk pylsa? Hlýlegt.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2008 kl. 10:58
Hmm, þessi sundleikfimi hljómar spennandi...
Vilma Kristín , 11.9.2008 kl. 11:32
Blár opal..... myndi ekki neita honum.
Linda litla, 11.9.2008 kl. 12:07
Um að gera að hafa rassinn fyrir aftan bak. Hann fer svo illa á bringunni.
Helga Magnúsdóttir, 11.9.2008 kl. 12:47
Já Helga það er voða notalegt að hafa hlutina á sínum stað...... rassinn fyrir aftan bak, munninn fyrir neðan nefið....
Linda! Blár opal var góður!
Vilma! Sundleikfimi er allra meina bót!
Helga Guðrún! Ekki nóg með það að ég sé hot - heldur er ég með hot dog!!
Takk Sigrún
Dísa Dóra! taktu þá með þér myndavél
Zordís! Blár opal? Coming up... Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína?
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 13:25
það er svo mikill dugnaður í þér kona að þú snýrð þér hægri/vinstri á myndinni ja hérna geri aðrir betur En blár ópal dí svo góður en nú drekk ég hann bara í vökvaformi sem snaffs jammí
Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 16:14
Átt þú góðan dag.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.9.2008 kl. 16:50
hehehe hvernig finnst ykkur þessi prófíll?
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 17:07
Þú ert einhvern veginn öðruvísi...kannski sundleikfimin spili þar inní...og þetta með rassinn...hmmm...en af hverju fær maður ekki lengur Bláan Ópal...hann bætti mig mest...hressti og kætti....
Bergljót Hreinsdóttir, 11.9.2008 kl. 18:06
Hann grætti mig nú...
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 18:35
Fín mynd.
Og takk fyrir að þakka mér....... ég hlýddi.
Anna Einarsdóttir, 11.9.2008 kl. 20:06
Loksins!! Einhver sem sagði að ég væri fín!! Takk - ég er búin að vera að bíða eftir þessu í allan dag.
Og loksins einhver sem hlýddi mér líka....... Jiii hvað ég er ánægð með þig! Spurning hvort þú verður ekki valin heiðursbloggari dagsins?
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 20:43
Hélt nú að það væri augljóst mál og ekki þyrfti að taka fram hversu flott myndin er af þér kona flottur prófíll þar hefuru það hafðu ljúfa nótt Elskuleg
Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 21:48
Þakka þér Brynja Auðvitað vissi ég það............
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 21:58
... er þessi sundleikfimi fyrir alla aldurshópa?... og er það ekki Maltið sem gefur hraustlegt og gott útliti og bætir meltinguna...? Malt og Opal saman... hvernig lítur maður út eftir slíka máltíð?
Og varðandi hann Axel Thorsteinsson sem las Lundúnarfréttir kl. 7 á morgnanna... þá var ég alltaf viss um það í den að hann vaknaði fyrstu allra landsmanna... og mikið rosalega var hann syfjulegur í röddinni... ég bara sofna á staðnum þegar ég hugsa um þessa rödd...
Brattur, 11.9.2008 kl. 22:10
(mér finnast broskallar ekkert plebbalegir .... eða þannig)
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.9.2008 kl. 22:21
Sundleikfimi er fyrir alla! Konur og kalla. Krakka með hár og kalla með skalla!! Malt og opal............ afar varasamt mundi ég telja.......... Ég man ekki eftir þessum Axel - enda er ég þetta yngri en þið mér fannst bara minningin góð hjá Hallgerði!
Ég veit Guðný Anna!
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 22:24
Malt, appelsín, og blár ópal. Nú, eða tópas. Og sundleikfimi. Hljómar sem bannvæn blanda.... full af ... loftbólum.... Þá þarf sko ekkert að æfa sundið... bara láta þrýstingstúðurnar knýja sig áfram....
Jammí!
Einar Indriðason, 11.9.2008 kl. 22:26
Algjörlega Einar
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 22:29
Ég vil fá bláann ÓPAL !
*hágrátzbrozkall*
Steingrímur Helgason, 11.9.2008 kl. 22:40
Zteingrímur! Komdu bara í sundleikfimi - jafngildir einum pakka af bláum..... eða tveim ;)
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 22:42
EYDDIRÐU ÚT COMMENTINU MÍNU!!!!!!!!!!!!!!!!!!?
Heiða Þórðar, 11.9.2008 kl. 23:15
Mér finnst þessi mynd mikið betri en hin og bara virkilega góð. Gaman að hitta þig á krúsinni í gær dúllurassinn minn. Enda með skemmtilegri konum sem ég þekki. Eins og ein sagði hér örlítið ofar að þá kætir þú, hressir og bætir.
Þú ert bara einfaldlega ÆÐI. Höfum ekki fleiri orð um það.
Þrusukram á þig.
Tína, 12.9.2008 kl. 06:16
Ég er ekki frá því að þú bætir mig, hressir mig og kætir mig. Ég er heldur ekki frá því að rautt klæði þig.
Hugarfluga, 12.9.2008 kl. 18:08
Ég hef aldrei vitað annað eins.... hvernig er hægt að fara fram á að maður hafi rassinn fyrir aftan bak..... lærði konan ekki líkamsbyggingu í skólanum..... eða var hún í skóla á Se...... og í þeim töluðu orðum bít ég í tunguna og bið þig vel að lifa....
ps.... flottur kjóllinn sem þú varst í í dag....
Fanney Björg Karlsdóttir, 12.9.2008 kl. 20:34
Takk
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 21:29
Æðisleg nýja myndin af þér
Huld S. Ringsted, 12.9.2008 kl. 21:45
Jii þetta endar með því að ég verð feimin..... Takk
Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 21:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.