23.8.2008
Ójá...
Ég er í skýjunum!
Það er svo gaman að hlaupa í þessu hlaupi! Svo mikil stemmning... maður hittir svo marga..... hitti t.d. bezta vin minn til fjölda ára! Algjörlega óvæntur bónus á hlaupið! Þau stóðu (enn) hann og konan hans þegar ég nálgaðist endalínuna og hvöttu mig í mark Í einu orði sagt: FRÁBÆRT hlaup! Takk - þið öll sem hétuð á mig - ég er nefnilega ekki viðskiptavinur Glitnis þannig að bankinn greiddi mínu áheiti engan stuðning!
Fórum eftir hlaup heim til Eyfa bró sem eldaði kjötsúpu! Ekkert smá gott að fá eitthvað heitt í kroppinn eftir hlaup! Eins gott að hann var fyrstur í mark af okkur systkininum og gat drifið sig heim að hita upp súpuna! Við Magga fórum svo í heita pottinn í Vesturbæjarlaug þar sem allir virtust hafa verið að hlaupa og ræddu hástöfum um hlaupið og tímana sína. Nema sko við Magga.... við erum svo félagslega heftar.... Við tölum ekki við ókunnuga........
Ég bætti minn tíma um heilar tíu mínútur frá í fyrra þegar ég kom í mark um leið og fyrsti maraþonhlauparinn! Sjálfsagt hefur þar vegið þungt að ég hljóp með Röggu á hælunum.... Ég dokaði nú samt við eftir fyrsta maraþonhlauparanum í ár!! Svona til að sýna samkennd. Spurning hvort sama tilfinning verður í gangi hans megin þegar ég kem fyrst í mark í maraþoninu eftir...... nokkur ár
Röltum svo í bæinn á eftir - það var ekki alveg nógu mikil stemmning þar. Sjálfsagt hefur rigningin spillt eitthvað fyrir. Ég fékk samt ókeypis faðmlag Að mér skeiðaði kona og spurði mig hvort ég væri að bíða eftir faðmlagi um leið og hún knúsaði mig........ Rosalega var það gott! Ég var mest hissa á sjálfri mér og sagði henni um leið og ég faðmaði hana á móti hvað mér þætti þetta gott!! Kannski ég sé að opnast á gamals aldri?
Læfisgúd
Athugasemdir
Hmmmmm..... hefði samt ekki verið huggulegra ef það hefði verið karlmaður sem knúsaði þig ? Vonandi svarar þú játandi því ég er búin að bjóða þér heim.
Anna Einarsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:04
Jú.... MIKLU huggulegra.........
Hrönn Sigurðardóttir, 23.8.2008 kl. 21:08
Assskoti ert þú dulleg deppa!! Og meðan þú hljóps borðaði ég Cocoa Puffs og klóraði mér í bumbunni. Ég er líka dulleg!
Hugarfluga, 23.8.2008 kl. 21:10
Æji Hrönnslan mín þú hefur alltaf verið opin, hlý og notalega persóna...... allavega allveg síðan ég kynntist þér........ hmm...kanski það sé þessvegna...
Til hamingju með árangurinn í dag......
Fanney Björg Karlsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:17
Fanney! Þú segir þetta bara til að fá böku næst þegar þú kemur.....
Lovjútú beibí
Fluva! Glæsilegur árangur
Hrönn Sigurðardóttir, 23.8.2008 kl. 21:21
Ógó dúgleg kona....frábært hjá þér að hlaupa svona og ennþá huggulegra að hinkra eftir maraþonaranum...
Síðast þgar ég hljóp tíu kílómetrana þurfti ég að bíða eftir mágkonu minni og tengdó meðan þær pissuðu úti á Nesi...var ekki alveg að fíla þá tillitsemi...enda tíminn ekki sá besti eftir það hlaup....ég meina...fólk á að klára svona FYRIR hlaup...ekki satt????
Þegar ég verð stór og búin að láta laga á mér hnén ætla ég sko í maraþonið....með stóru sys.....og vona að fyrst hún vinnur hjá Glitni sponseri þeir líka á mig...aþþí ég er systir hennar....nú eða þvinga bæjarstjórann til að borga með mér.....á það inni...því það er svoooo gott að búa í Kópavogi...he he...
Vantar þig faðmlag?...sendi þér eitt...núna....
Bergljót Hreinsdóttir, 23.8.2008 kl. 21:22
Mér finnzt ekkert 'gay' að faðma önnur konudýr ?
Steingrímur Helgason, 23.8.2008 kl. 21:27
... til hamingju með hlaupið... þekki tilfinninguna hvað það er gott að komast í mark og vera búinn með hlaupið... hún er sko góð... og ekki er verra að bæta tímann sinn... tíu mínútur í bætingu á ári og heimsmetið er í hættu...
Brattur, 23.8.2008 kl. 21:28
Til hamingju, duggnaðardrózinðínðaddna með veðhlaupahryssulappirnar!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.8.2008 kl. 22:10
Innilega til lukku duglega kona, var að hugsa til þín í morgun í rigningunni, sá svo í fréttum að þið virtust sleppa. Frábær árangur hjá þér. Hafðu það gott mín kæra og ÁFRAM ÍSLAND
Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2008 kl. 22:11
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.8.2008 kl. 22:50
Ég er viss um að ég sá þig í fréttum kvöldsins
Heiða Þórðar, 23.8.2008 kl. 23:53
til hamingju duglega kona! glæsilegur árangur!!!
www.zordis.com, 24.8.2008 kl. 00:42
Þú ert sko laaaaaangflottust mín kæra. Lokuð??????? Aldrei hefði mér dottið í hug að þú ættir það til. Þú komst í það minnsta fram við mig eins og við hefðum þekkst í mörg ár frekar en að við værum að hittast í fyrsta skipti. Og fannst mér það afskaplega notalegt. Enda ertu bara frábær og yndisleg í alla staði.
Farin að vekja pakkið hérna svo þeir geti horft á leikinn.
Tína, 24.8.2008 kl. 07:08
Sigrún Jónsdóttir, 24.8.2008 kl. 11:00
hahah.....skil ekkert í þessum bónusreglum........
Það betra að hlaupa í mark en að hlaupa í spik ......hlaupa í fang er laglang betsast.....og mér finnst kjötsúpa góð.....trlalalala.ooooo
Solla Guðjóns, 24.8.2008 kl. 12:03
Djö...stuð er alltaf í kringum þig kona. Viss um það er gazalega gott að faðma þig.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.8.2008 kl. 15:04
Takk Guðný Anna! Hún hafði orð á því líka.... Kannski ég bjóði mig bara fram næsta ár? Eða ráði hana sem markaðsstjóra minn?
Nei Hallgerður! Engin von til þess - hornin eru mín dýrmætasta eign
Smjúts á ykkur öll!
Hrönn Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 15:20
til lukku duglega kona
langt í að ég færi í svona hlaup (nema það væri slökkviliðið fyrir framan mig svo ég hefði eitthvað að horfa á) en þið eruð frábær að gera þetta
Rebbý, 24.8.2008 kl. 15:34
Til lukku með þennan árangur
Huld S. Ringsted, 24.8.2008 kl. 20:34
Gleymdi að kíkja hér inn og óska þér til hamingju með hlaupið. Nú og strákana líka
M, 24.8.2008 kl. 21:00
Takk stelpur og Rebbý - slökkviliði var alveg þess virði að horfa á
Hrönn Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 22:06
Flott hjá þér. Ég hugsaði mikið til þín, af því að ég var með fiskinn þinn í farteskinu, ætlaði að láta ´dóttur mína taka hann til þín, en hún kom svo heim með okkur og fer suður á miðvikudaginn, og fiskurinn fer með. Svo það má segja að ég hafi hugsað hvetjandi til þín í hlaupinu Hrönn mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 11:13
Takk fyrir það Cesil!
Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 11:16
Brynja skordal, 25.8.2008 kl. 13:32
Hagaðu þér nú skikkanlega við aðra superbloggara.
Þröstur Unnar, 25.8.2008 kl. 19:28
Ég er alltaf að reyna.....;)
Hrönn Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.