11.8.2008
Af fíknum og fleiru....
Ég fór út að skokka eftir vinnu! Hljóp fram á þrjá peyja á hjólum! Þeir kölluðu: "Hey kona! Ertu að hlaupa í kringum Ísland?" Ég náttúrulega réði ekkert við lygakvendið insæd of mí og svaraði þeim játandi.... Þá spurðu þeir: "Hvar áttirðu einu sinni heima?" - Fannst þeim ég ekki hlaupa neitt ofsalega hratt eða hvað? Ég sagði þeim að einu sinni hefði ég átt heima á Dalvík! Þá sagði einn þeirra mér að frænka hans ætti heima þar... og spurði hvort ég þekkti hana Enn hafði ég enga stjórn á konunni sem getur ekki gengið fram hjá barni - hvað þá skokkað... - öðruvísi en að ljúga og hún sagði honum að vitaskuld þekkti hún frænku hans Það skal tekið fram í þessu samhengi að þeir hjóluðu með mér áleiðis á meðan ég svaraði spurningaflóðinu. Ég náði svo góðum millitíma og er bara sátt - enda styttist í Reykjavíkurmaraþonið þar sem þið ætlið vitaskuld öll að sponsera mig!!
Ég framdi hrikalegan glæp í gær! Ég treysti því að þið látið það ekki fara lengra þótt ég trúi ykkur fyrir honum! Ég stal ÖLLUM rabbarbaranum frá nágrannanum! Skar hann niður og frysti! Nú er ég komin með hráefni í 12 skammta af rabbarabarapæi - sem dugar mér, varlega áætlað í þrjá mánuði. Ég flauta svo bara kæruleysislega frystikistulagið þegar ég geng fram hjá beðinu hans og horfi í hina áttina..... Ef ég baka úr mínum rabbarbara þangað til hann klárast þá reiknast mér svo til að ég eigi í skammtinn minn þar til í desember! Þá eru að minnsta kosti fimm mánuðir þar til rabbarbarinn fer að spretta á ný! FIMM MÁNUÐIR! Ég get sagt ykkur það að ef þið lesið um það á netinu að Sýslumaður Íslands hafi tekið konu á handahlaupum í rabbarbarabeði um hánótt - þá er það ekki ég.........
En vitiði hvar ég næ í meiri rabbarbara?
Athugasemdir
hahaha þú ert yndi. Ég skal koma með þér í ránsferð í rabbabarabeð
Dísa Dóra, 11.8.2008 kl. 20:42
Þú ert nú meiri lygalaupurinn. Ekki segja mér hvar þú nærð í meiri rabbabara, því þá verður hann kannski horfinn áður en við er litið.- Og þó, þú gætir verið að jú nó vott, - þú ert nú einu sinni fræg .......
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.8.2008 kl. 20:48
þú ættir að efna til s.k. lygahlaups!!!
Alltaf spræk, alltaf kát, alltaf Hrönn mun ég láta prenta á alla bolina og við bloggfélagar sláum í púkk og púkkum uppá þig í marki!!!
Síjú ....
www.zordis.com, 11.8.2008 kl. 21:01
Hrönn vinnur maraþonið. Við bloggvinirnir stöndum við marklínuna með rabbarbara og vitið til..... hún verður langfyrst.
Anna Einarsdóttir, 11.8.2008 kl. 21:16
þú ert alltaf fyndin og alltaf skemmtileg.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.8.2008 kl. 21:23
Mér finndist það það minnsta sem þið gætuð gert! Og ef þið gætuð verið búin að skera hann niður líka og setja í poka.........
Zodís! Mér líst vel á þessa hugmynd með bolina! Svo gætir þú teiknað mynd af mér að skokka fjólublá í framan og við mundum setja myndina á bolina líka
Dísa! Ég hringi í þig seint um nótt! Kynni mig sem Rabba...... Þetta verður samt að vera algjört leyndarmál - undir engum kringumstæðum máttu leka upplýsingum til þriðja aðila
Lilja Guðrún! Viltu koma með?
Ómædog ég er að verða búin að stofna ræningjakonuklúbb á netinu!
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 21:24
... ég þarf eiginlega að vita hvað þú ætlar að hlaupa langa vegalengd í Reykjavíkurmaraþoninu áður en ég sponsera...
Brattur, 11.8.2008 kl. 21:33
10 km Brattur ;) Læt það duga.....
Katla mín
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 21:35
Ég hélt að einu nágrannar þínir væru Hvítasunnumenn, brjálaðir Sjálfstæðismenn og Bónus, en verði þér rabbinn að góðu, ég læt stela fyrir mig rifsi svona hér og þar. Gangi þér vel í hlaupaæfingum og lygum er nokkuð búið að setja heimsmet í lygum ?? knús á þig darling
Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 21:41
Geturðu stolið hnausum fyrir mig fyrst þú ert að þessu brölti ? Ég hef ekkert að gera við svona lausan rabbarbara...vil endilega rækta hann sjálf.
Ragnheiður , 11.8.2008 kl. 21:59
Ekkert mál Ragga mín! Þú getur fengið hnausa hjá mér!
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 22:24
Uppi í Skammadal, I will lead the way (mig vantar líka).
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2008 kl. 23:05
Jenný! Ég hringi þá í þig líka! Þú manst!! Code name Rabbi.......
Hrönn Sigurðardóttir, 11.8.2008 kl. 23:08
Vá þið eruð allar svo æstar í rabbabarann, þið væruð kannski til í að gefa mér krukku af rabbabarasultu ?? Þá þarf ég ekki að fara í BÓNUS að "stela" mér krukku
Linda litla, 11.8.2008 kl. 23:57
Já og svo má nú maeta med rabbabara vín kaelt og brakandi eda Rabba bara!
www.zordis.com, 12.8.2008 kl. 00:22
Hahaha !!! Hér er hægt að fá rabbabara út um allt, og ég meina allt. Annars gæti ég sent dálítin rabbabara með fiskinum, er búin að sjá út ferð, dóttir mín kemur á næstu helgi frá Hellu, og fer einhverntíma aftur næstu viku. Ég ætlaði að láta hana færa þér fiskinn. Þú vilt ef til vill slatta af rabbabara með, þú þarft ekki einu sinni að stela honum. Ég er með hann í reiðuleysi upp á lóð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 09:50
Endilega Cesil!
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 09:54
Svona er nú bloggið dásmlegt!
Rabbabarapæ ala Hrönn með vestfirzkum keim!
www.zordis.com, 12.8.2008 kl. 11:09
Hey snillingur. Ég á fullt af rabbara fyrir þig. Mér skilst að þetta sé ekki þessi hefðbundni rabbari heldur er hann minni og rauðari og á víst að vera betri. Mátt fá eins og þú vilt af honum hjá mér. Skal meira að segja hella upp á kaffi fyrir þig sem þú getur svolgrað í þig meðan þú tekur pásur .
Hlakka annars mikið til að hitta þig í dag. Knús á þig á meðan.
Tína, 12.8.2008 kl. 11:34
í rabbabaralandi !!!
kærleikur til þín og allra
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 15:42
rabbarabaraþjófur að hlaupa í kringum ísland?Bændur passið rabbann ykkar
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 22:52
Hey...frændi minn á Selfossi er alveg niðurbrotinn...hann var búinn að safna rabbarbara í tólf rabbarbarapæ og svo einn morguninn var alllur rabbinn horfinn....
Getur verið....nei...eða...MÁ ÉG SJÁ Í KISTUNA ÞÍNA !
Bergljót Hreinsdóttir, 12.8.2008 kl. 23:09
Já ég man leyniorðið - og lofa að kjafta sko alls ekki.
Gaman að sjá framan í þig í dag þó í örmynd væri - hittumst betur næst skvís
Dísa Dóra, 12.8.2008 kl. 23:12
segi það og skrifa; þú ert SNILLINGUR! Færð mig alltaf til að hlæja, yndið mitt. Hefði verið til í að vera með ykkur á Selfossi í dag...en kem bara seinna.
Kyss...
SigrúnSveitó, 12.8.2008 kl. 23:25
Rabbarbarinn vex villtur hérna á Blönduósi....
alva (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 23:37
Það er nú allt svo villt á Blönduósi....
Hefði líka alveg verið til í að hafa þig með Flórens
Takk sömuleiðis Dísa skvísa
Úpps! Ég get sossum alveg gefið þessum frænda þínum bita af minni tertu.... sko ef hann er einhleypur og myndarlegur - en ég hef ekki grængolandi hugmynd um rabbarbarann hans Svo á ég ekki einu sinni frystikistu.......
Birna Dís og Steinunn
Tína! Takk fyrir mig
Zordís! Hefætóldjúleitlíþatælovjú?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 23:52
Ég á gamalt rabbabarabeð neðan við raðhúsið Austurtún 5 í Bessastaðahreppi. Mér sýnist enginn vera neitt sérstaklega að hirða mitt gamla góss þarna, elsku farðu og fáðu þér nokkra. Ég nýt þá ennbetur sultunnar á pönnukökunum sem ég ætla að njóta hjá þér ásamt Fanneyju vinkonu minni og samferðamanni, síðar. Ég gæti vísað þér á fleiri berjalönd, en læt staðar numið að sinni.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.8.2008 kl. 01:42
Hæ ljúfust og takk fyrir síðast...... gaman gaman...
Fanney Björg Karlsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:07
Gefðu okkur endilega uppskriftina að rabarbarapæinu góða.
Steingerður Steinarsdóttir, 13.8.2008 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.