4.7.2008
Ég er svöööööng......
Mig langar ekki lengur að borða bara AB mjólk! Ferlega er ég orðin þreytt á AB mjólk.... Mig langar í djúsí steikur, franskar kartöflur, salat!! Eitthvað sem bragð er að!! En AB mjólk er það eina sem kemst ofan í mig
Ég hringdi upp á heilsugæslu í morgun og spurði hvort það væri laus tími hjá einhverjum lækni! Já - sagði konan á símanum komdu eftir tuttugu mínútur! Ég varð svo hissa að ég missti næstum málið.... aftur Fór svo og hitti lækninn - eða drenginn. Var frekar fegin að eiga tíma fyrir hádegi hjá honum til þess að þurfa ekki að spilla hádegislúrnum hans Hann vildi skoða hálsinn og spjalla voða mikið! Ég hins vegar sat hin þrjózkulegasta og harðneitaði að opna munninn. Þegar við svo að lokum náðum málamiðlun úrskurðaði hann mig með streptococcasýkingu og sendi mig heim með undrapillur sem eiga að lækna mig á millimetra úr sekúndu. Hann virtist voða feginn þegar ég fór að hann þurfti ekki að taka á móti mér seinni partinn til að spilla nú ekki miðdegislúrnum mínum........
Í öllu þessu málleysi höfum við Stúfur Stubbalings komið okkur upp okkar eigin máli - tákn með hljóðum - kalla ég það. "Klapp klapp - þýðir: komdu hér. Klapp klapp klapp - þýðir: Koma hér strax. Ef ég spretti fingrum fer hann þá leið sem ég bendi honum - og ein hendi - þýðir: ekki bannað innan tólf heldur, bíddu!" Hann verður orðinn hlýðnasti hundurinn í hverfinu þegar og ef ég næ heilsu á ný
Ég er að lesa alveg fantagóða bók svona þessar fáu stundir sem ég næ að halda mér vakandi.... hún heitir Leyndardómur býflugnanna eftir Sue Monk Kidd. Mæli með henni! Hún leiðir mig svo áreynslulaust í gengum heim fullan af hatri og ofbeldi á meðan hún veitir einnig innsýn inn í aðra veröld svo miklu - miklu ljúfari..... með fróðleiksmolum um býflugnarækt inn á milli.
Mig langar svooooooo í eitthvað gott að borða..........
Athugasemdir
Elsku kerlingin, þetta er nú ferlegt og stórhættulegt að vera með streetsýkingu eða voru það kokkar ... Ég er að fara út að borða í kvöld og veit ekkert hvað mig langar í.
Láttu þér batna háa og þvengmjóa kona!
www.zordis.com, 4.7.2008 kl. 18:09
Æi greyið mitt. Þér til huggunar og fróðleiks, þá fékk ég einu sinni þessa kokka og það er ótrúlegt hvað manni batnar fljótt - allavega það versta - eftir meðhöndlun með lyfjum.
Nú mæli ég með því að einhver búi til fyrir þig kartöflustöppu, gammeldags.
Hvar er nú riddarinn á ísbirninum sem kann að elda ???
Anna Einarsdóttir, 4.7.2008 kl. 18:23
haha! Já hvar er hann?
Hrönn Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 18:24
láttu þér batna svo stubbalingur hætti að þurfa að hlíða svona vel og auðvitað svo þú komist á fætur til að skoða og daðra við strákana
Rebbý, 4.7.2008 kl. 18:56
snúlludúllan mín. Mikið er gott að hinn barnungi læknir (sem ég er alveg handviss um að búið er að venja af miðdegis/hádegislúrnum) gat bjargað þér um lyf við helvískum kokkunum.
Brátt munu franskar kartöflur, löðrandi í fitu og kólesteróli, renna ljúflega niður þinn mjúka og ósára háls. Mmmm.
Jóna Á. Gísladóttir, 4.7.2008 kl. 20:35
Hlýddu bara litla krúttlega doktornum og taktu pillurnar...og þú getur ábyggilega fengið þér eitthvað djúsí á sunnudaginn....eftir hádegislúrinn...
Ég lenti á spítala með þessa fjárans kokkabjána fyrir nokkrum árum síðan..og þakka fyrir að vera enn í tölu lifenda....
Farðu varlega og vertu stillt...
Bergljót Hreinsdóttir, 4.7.2008 kl. 20:37
Vá Hrönn mín, varstu nokkuð á leikskólanum á Suðureyri Knús á þig elskuleg mín, ég er einmitt búin að horfa upp á stelpurnar mínar tvær verða þessum kokkum að bráð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.7.2008 kl. 21:18
Elsku Hrönnslan mín, held bara að ég verði að líta á þig á morgun. Helv. kokkarnir eru ógeð, hef ég heyrt. En hún Anna er að tala um eitthvað gammeldags, mér líst betur á gammel dansk stubbalingur á eftir að verða fyrirmynd allra annarra hunda forever.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 21:45
Ég var með grillað lambalæri, kryddað með rósmaríni, möluðum svörtum pipar og Maldonsalti, bakaðar, salat, rósakál og alles.
Lalalalala
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.7.2008 kl. 00:13
Það hefur greinilega gleymst að segja þér að það er stranglega bannað að vera veikur á sumrin, um helgar og þegar maður er í fríi!! En ég ætla að senda þér hlýja strauma og láttu þér nú batna hið snarasta kona góð.
Knús á þig yndislegust.
Tína, 5.7.2008 kl. 07:59
Ég skellihló... ekki oft sem manni verður það á svona aleinni ...eða það hélt ég þangað til krakkapöddurnar komu hlaupandi.. úpps helgi. Búin að gleyma að hönkið er að vinna þennan laugardag.. -Hvert ætti ég að senda dýrungana..?
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.7.2008 kl. 10:11
Ab mjólk uss ég er líka orðin mjög leið henni. vonandi lagast þú fljótlega dúllan mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2008 kl. 10:25
Iss ekkert mál að redda steikinni.MAUKA ALLAN MAT LÍKA STEIKINA Góða helgi
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 12:42
Farðu vel með þig Hrönn, þeir eru stórvarasamir þessir (strepto) kokkar ef þeir komast lengra en í kokið á manni!
Sigrún Jónsdóttir, 5.7.2008 kl. 14:39
tú ert snilli, tekst ad gera allt fyndid! Ég hef tekid eftir tessu hvad læknar nú til dags eru ordnir ungir...varla komnir yfir fermingu...usssss...ég neita ad trúa ad tad tengist á nokkurn hátt mínum aldri...
Einu sinni fékk ég streptókokka...tad var vont...fékk tá reyndar í löppina og hélt ad hún myndi springa í tætlur...
SigrúnSveitó, 5.7.2008 kl. 19:41
Aldur lækna: Ég er viss um að þessi nýjasta kynslóð lækna gengur með dudduna í vasanum og fær sér smá tott milli sjúklinga.
Streptókokkar: Eru fljótir að safnast til feðrakokkanna þegar fúkkalyf koma í jöfnuna.
Matur fyrir streptókokkahálsbólguröskunarsjúklinga:
1. Súkkulaði brætt með rjómaögn og smjörklípu yfir vatnsbaði. Hrært saman við AB-mjólk og kælt.
2. Franskar kartöflur stappaðar með kokkdillissósu. Gott að skreyta með smá steinselju.
3. Ein með öllu sett í blandara. Gott mauk sem minnir á biðröðina á Bæjarins Beztu eftir djamm.
Þessu má meira og minna öllu skola niður með Rioja rauðvíni eða Chablis hvítvíni.
Uppskrift #1 er pottþétt - og langt í frá að vera djók. Prufaðu bara.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 5.7.2008 kl. 20:41
Takk Guðný Anna! Ég prófa þetta......
Hrönn Sigurðardóttir, 5.7.2008 kl. 21:44
Huld S. Ringsted, 5.7.2008 kl. 22:05
Ég var alltaf að fá þessa bévitans kokka, þangað til "hálsmenogeyrnalokka" læknirinn ákvað að taka hálskirtlana úr mér, hefur ekki orðið misdægurt síðan að ráði...mæli með þessari aðgerð...en þú getur ekki boðað neitt af frönskum og svoleiðis jukki í svona 10 daga...nema kannski kokteilsósuna...svo ég veit ekki hvort þú leggir í þetta sko...
Góða helgi!!
alva (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 00:23
vonandi er þér farið að batna kæra hrönn !
þessi bók er algjör snilld, las hana í vetur og langaði að les hana endalaust.
kærleikskveðjur
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.7.2008 kl. 12:13
Láttu þér batna í snarheitum og ég ætla að finna þessa bók, hljómar mjög vel.
Helga Magnúsdóttir, 6.7.2008 kl. 15:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.