23.3.2008
Einkamál á páskum ;)
Hvílíkur letidagur. Það er með herkjum að ég nenni að anda Við Stúfur Stubbalings létum það sem vind um eyrun þjóta þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn í messu í morgun. Það var aðeins of snemmt fyrir okkur að innbyrða trúarboðskap fyrir klukkan átta!
Fanney kíkti við hjá mér í gær. Alltaf svo gott að fá Fanney í hús. Við vorum m.a. að spá í dansnámskeið. Mig langar svo að læra dans en vantar einhvern að dansa við, svokallaðan dansherra...... Ég kom með þá snilldarhugmynd að auglýsa eftir honum á Einkamál.is en ég er bara svo hrædd um að þeir vilji gera eitthvað meira en dansa við mig, strákarnir þar Sjálfsagt ætti ég bara að skrá mig á dansnámskeið og láta svo ráðast hvort einhver fæst til að dansa við mig.........
Ég skellti í brauð sem er að hefast hjá mér núna. Ætla að hafa það með kvöldmatnum - réttur dagsins er.... Kjúklingur!! Jamm - ég borða Bamba litla fyrir jólin og litlu dædu kjúklingana á páskum..... Flokkast líklega undir að vera sannheiðin....? Og úr því að þið voruð svona slyng að vita hver voru síðustu orð Krists á krossinum - er þá einhver sem veit hver voru fyrstu orð hans á títtnefndum krossi?
Mamma kíkti á mig í gærkvöldi. Hún gaf litlu snúllunni sinni páskaegg Og konan sem var búin að telja sjálfri sér trú um að hana langaði ekki í páskaegg gat varla beðið eftir að klukkan slæi tólf á miðnætti svo hún mætti opna páskaeggið. Málshátturinn sem ég fékk var: "Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær" Soldið við hæfi Hvaða málshátt fékkst þú?
Nú ætla ég að halda áfram að letingjast, grafa upp prjónana með peysunni sem ég fleygði frá mér í bræði minni þegar Magga skondraðist framúr mér með sína peysu Þórarinn Eldjárn bauðst til að lesa fyrir mig smásögur eftir sig á meðan. Vitaskuld þáði ég það - úti rignir.........
Athugasemdir
Jú þetta er allavega merkt á alheimsnetinu sem kría.....
Hrönn Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 17:37
Ég fékk ekkert páskaegg, stel bara frá börnunum. Hafðu það gott elskuleg
Innilega gleðilega páska til þín og þinna.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 18:08
Mmmmmm ég fékk flott páskaegg...... og gott var það..... málshátturinn hljómaði eitthvað á þá leið......"Eftir verkinu fara vinnulaunin........" ekki skrítið að maður skuli vera á himinháum launum hjá ríkinu........ takk fyrir spjalli og kaffið í gær ljúfust..alltaf næs að heimsækja þig.......
Fanney Björg Karlsdóttir, 23.3.2008 kl. 18:19
Minn málsháttur hljómaði upp á að meðalvegurinn væri vandrataður. Fannst nú frekar skítt að fá slíkt þegar ég stóð á blístri eftir mikla átveislu dagsins
Dísa Dóra, 23.3.2008 kl. 18:27
Góður dagur hjá þér ... Hðönn boðða bíbí. Er ekki einkamal.is alveg hræðileg leið til að finna dansherra? Lendirðu ekki í einelti frá einhverjum sveittum loðfíl með rós í munninum og olíuborið hnakkaspik? *hrollur*
Og málshátturinn okkar (fengum egg saman) var "Með gleði skal harmi hrinda". Sem er svo mikið rétt, nema þú heitir Harmi og sért indverskur skiptinemi.
Hugarfluga, 23.3.2008 kl. 19:37
Ekki fékk ég páskaegg hafðu það gott Hrönn mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 23.3.2008 kl. 20:45
Minn málsháttur var "Enginn er dómari í sjálfs sín sök" og ég er búin að hugsa og hugsa og hugsa...... hvað ég hafi gert af mér ?
Anna Einarsdóttir, 23.3.2008 kl. 23:06
Málshátturinn minn var: Flýtur meðan að ekki sekkur. Passar ágætlega við mig þessa dagana.
Gleðilega Páska
Huld S. Ringsted, 23.3.2008 kl. 23:43
Ég fékk engan málshátt ..en er mikið búin að spá í þennan einkamálabissness...sko dansnámskeið og svo sá hristingur sem þeir þar myndu leggja til ? Er nokkur munur á þessu ..ég meina sko líkamsræktarlega séð ?
Ragnheiður , 24.3.2008 kl. 00:37
Hvernig væri að setja upp auglýsingu í "kaupfélaginu" ..... Eða finna dansfrauku því herrana virðist vandasamara að fá.
Líst eiginlega ekki á einkamála leiðina, eða hvað? Gangi þér vel í leitinni að týnda hlekknum!
www.zordis.com, 24.3.2008 kl. 09:34
Auglýsing í Kauffjelaginu já! Ekki slæm hugmynd það.....
Auglýsa eftir dansherra til að dansa við í Tryggvaskála
Ragga! Nei líklega fær maður nokk það sama út úr hreyfingunni - þannig lagað séð......
Gleðilega páska allar
Hrönn Sigurðardóttir, 24.3.2008 kl. 10:43
ég fékk "Enginn sér við öllum rokum" og eggið mitt er ljúffengt
hvað dansinn varðar þá mæli ég ekki með einkamálum fyrir leit að dansherra, en tékkaðu bara hvort þú þurfir nokkuð að hafa slíkan með þér !! bæði á salsanámskeiðinu mínu og svo þessu dansnámskeiði í vinnunni var búið að skrá fleiri konur en karla svo þeim var bara reddað á svæðið og það er enn betra því þá lendir maður oftar á vönum dansherra og það auðveldar námið skal ég þér segja
Rebbý, 24.3.2008 kl. 10:49
Í mínu smánarlega litla páskaeggi sem Jenný Una réðst á (sem betur fer) stóð eftirfarndi:
Svo er auður sem augabragð. Hann er valtastur vina.
Mikið skelfing er ég sammála.
Hallgerður er með Jesússss á hreinu. Ég líka.
Knús á þig.
Bon apitit
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.3.2008 kl. 11:55
Dansherra það er nú það. Verst að það er ekki hægt að notast við róbóta í það eins og að taka til og svoleiðis Ég fékk páskaegg, en ég er ekki ennþá búin að opna það, út af flensunni sjáðu til Hrönn mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 14:08
Eitt mjög dularfullt, ég fæ alltaf sama málsháttinn, ár eftir ár. Betur vinnur vit en strit.
Markús frá Djúpalæk, 24.3.2008 kl. 15:11
Ég skal dansa við þig anytime - anywhere....knús elskan.
Heiða Þórðar, 24.3.2008 kl. 19:06
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 20:03
ég fékk ekkert páskaegg !
Blessi þig
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 13:36
Minn málsháttur var eitthvað á þá leið.....meðan sólin glitrar á könnunni verður dropinn vel geimdur því tappinn vill ekki úr...
Neineinei nú var ég að ruglast þetta var í færslunni á undan
Umm það var örugglega,,,,,,,,,,,betri er flassdans en einkadans...nema að auglýsingin hljóði upp á annað........
ÓKEY ÉG FÉKK EKKERT PÁSKAEGG.
eN HVAÐ MEÐ BETRA ER AÐ AUGLÝSA Í kAUPFÉLAGINU EN AÐ SITJA HEIMA MEÐ HENDUR Í SKAUTI.......
Annars bara knús á þig
Solla Guðjóns, 25.3.2008 kl. 20:20
Solla!! Knús til baka
Hrönn Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.