14.1.2008
fósturvísir....
Í "gamla daga" þegar ég var lítil var vísir að leikskóla þar sem barnaskólinn er nú til húsa. Tjah.... annar þeirra allavega
Ég "fékk" að fara - ekki það að ég vildi það endilega. Ég vildi bara vera heima og leika mér við krakkana í götunni eins og venjulega en sjálfsagt hefur þetta þótt mikil bylting og öll börn haft gott af því að fara á leikskóla. Það eina sem ég man frá þessum dögum er hve mikið mér var mál að pissa en þó ég hefði átt líf mitt að leysa þorði ég ekki að segja fóstrunni frá því eða eiga við hana nokkur önnur samskipti. Ég hef sjálfsagt verið eitt af þessum afskaplega "þægu" börnum þótt í reyndinni væri ég svo feimin að ég þorði ekki að eiga nein samskipti, hvorki við önnur börn á leikskólanum né margumrædda fóstru. Nú er ég í leikfimi með þessari sömu fóstru tvisvar í viku og þegar ég segi henni frá því hve mikið ég þjáðist í den af feimni við hana og aðra þá hlær hún eins og tröllskessa í afmæli!!
Er það nema vona að maður hafi verið hræddur?
Mér þykir samt voða vænt um hana kjéddlinguna
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Þorirðu að pissa í kringum hana í dag ? Hehehe líklega orðin nógu stór til að geta sjálf
Ragnheiður , 14.1.2008 kl. 21:04
Hún hafði það einmitt á orði, þegar ég sagði henni frá þessu, hvað laugin hefði hitnað.......
Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 21:10
Ef þig vantar hjálp þá hringirðu bara.
Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 21:10
hihi geri það Ásdís......
Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 21:22
Dísa Dóra, 14.1.2008 kl. 22:03
Veistu ég var svo lítil í mér að ég var einu sinni látin á gæsluvöll í ca klukkutíma og það er lengsti klukkutími sem ég hef upplifað, bæði í skelfingu og þeirri vissu að mér yrði gleymt og enginn kæmi og næði í mig. Svo þorði ég ekki að segja að mér væri mál að pissa og pissaði niðurúr. Ég var ekki látin aftur á viðlíka stofnun
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 22:34
Ég var nú aldrei feimin við konur en karla!! OMG tróð mér einu sinni á bak við gamla Rafha eldavél og náðist ekki aftur nema draga eldavélina fram sem betur fer rjátlaði kallafælnin af mér
Huld S. Ringsted, 14.1.2008 kl. 23:08
Tek undir með Elísabetu...en trúi þér samt alveg Hrönn.
Samanber mig sjálfa...opna fyrst kjaftinn á mér um tólf ára aldur...hef ekki lokað honum síðan...kannski eigum við það sameiginlegt...
Heiða Þórðar, 15.1.2008 kl. 01:03
Vont að vera feiminn, litill eða stór! Gott að þú náðir að verma afmælisskessunni í djúpu lauginni! Góð buna þar ....
www.zordis.com, 15.1.2008 kl. 10:31
Ég var líka feimin sem barn og er það en.
Kristín Katla Árnadóttir, 15.1.2008 kl. 11:06
Hehe ég var sko ekki feiminn krakki. Ef að þú hittir dóttur mína einhvern tímann þá sérðu svona um það bil hvernig ég var.
Bryndís R (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.