13.1.2008
Andi húsanna
Þar sem ég lá í rúminu í morgun og þóttist vera að lesa, en var aðallega að dorma og hugsa um hversu frábæran dag ég átti í gær með Möggu og mömmu, fann ég hvernig yfir mig kom löngunin til að hafa allt hreint í kringum mig. Ég lá talsvert lengi og reyndi að láta þessa tilfinningu líða hjá en gafst upp á endanum og fór að þrífa.
Núna mallar þvottavélin í kjallaranum á hæstu stillingu - tóm, með eplaediki, kaffivélin er að hreinsa sig líka, sömuleiðis með eplaediki, uppþvottavélin er í hreinsunarátaki líka, full af saltsteinum og ég er að velta því fyrir mér hvort mér takist að humma það fram af mér að byrja að skúra. Ég held samt ekki. Enda vön að klára hlutina!
Á meðan ég var að ryksuga og þurrka af fór ég að hugsa um hversu misjafnlega hús taka á móti manni.
Það rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég var að leita mér að húsnæði fyrir rúmum sjö árum. Þá skoðaði ég hverja íbúðina á fætur annarri. Sums staðar fannst mér eins og íbúðin segði: "farðu, farðu....." annarsstaðar var hlutleysi í gangi svona status quo ástand, hvorki né - þið skiljið mig......
Þegar ég skoðaði eina íbúðina í fyrsta sinn voru allar hurðir og hurðakarmar lakkaðir eldrauðir, það var eins og að stíga inn í forgarð helvítis að koma inn í hana. Veggir voru dökk, dökkgrænir og loftið í ganginum rautt. Niður í kjallarann, þangað sem farið var í gegnum hlera á gólfinu, var hænsnastigi, hrikalega brattur! Þessi íbúð sagði við mig: "Þú átt heima hér...." Vitaskuld keypti ég hana.
Mér líður alltaf vel hérna heima og í hvert sinn sem ég fer að heiman bíður húsið mín og tekur svo fagnandi á móti mér þegar ég sný aftur.
Ég á líklega heima í húsi andanna
Athugasemdir
Þekki svona tilfinningu! Æðislegt að finna hús sem passar svona vel fyrir konu, þú ert lánsöm að hafa fundið hreiðrið þitt! Lést ekki slá ryki í augun með litavali fyrrverandi eiganda
www.zordis.com, 13.1.2008 kl. 17:03
Er búið að mála í forgarði helvítis?? ég held ég verði að fara að kíkja á þig.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 17:30
Sum gömul hús eru bara notaleg á einhvern óútskýranlegan hátt, meðan önnur ný og glæsileg eru köld og fráhrindandi. Maður áttar sig ekki alltaf á því hvað það er. Sum hús hafa sál eins og sagt er.
Ágúst H Bjarnason, 13.1.2008 kl. 18:46
Og eru þessir litir ennþá hjá þér eða...
Bryndís R (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 18:56
skil vel að þér líði vel í litla sæta húsinu þínu...... það er eins og það hafi verið byggt fyrir þig....... enda eru það fastir liðir þegar ég og bóndinn keyrum framhjá húsinu að kíkja í eldhúsgluggann og veifa....okkur hefur að vísu sjalda verið veifað til baka en það er sama við höldum áfram að veifa.......soldið eins og fífl í afmæli og þó.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 13.1.2008 kl. 19:05
eins og fífl í afmæli!!! Þú drepur mig Ég skal reyna að veifa ykkur tilbaka næst! Það er bara svo mikið að gera í veifinu að ég er eins og bretadrottning á góðum degi
Nei, nei Bryndís - ég var frekar snögg að breyta.
Knús á ykkur öll
Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 19:25
Já, þú átt sko ábyggilega heima í húsi andanna. Þar eiga allir skemmtilegir karakterar heima.
Steingerður Steinarsdóttir, 13.1.2008 kl. 19:30
Takk Steingerður
Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 19:32
Ég sagði það fyrir löööööngu síðan Dúa og taka Völu með!
Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 20:26
þekki þessa tilfinningu, við keyptum okkar hús næstum án þess að skoða það, bara garðinn. húsið var hræðilegt að innan, en með þvílóka sál!
hafði gott kvöld
Bless
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 21:27
Tilfinningin inni í húsnæðinu ræður öllu í mínu húsnæðisvali - bara treysta á eðlishvötina. Hænsnastigi hefði kannski slegið mig út af laginu enda verð ég að þykjast örugg í stigunum
Rebbý, 13.1.2008 kl. 23:02
Mér líst vel á þessa eplaedikshreinsun. Eitt sinn ætlaði ég sjálf í eina slíka, en vegna ásækni minnar í gott bragð, varð ekki af henni.
Já, drottningarvinkið; það er semsé fyrir utan heima hjá þér sem er vinkað milli fjögur og fimm á þriðju - og fimmtudögum? Vink, vink.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.1.2008 kl. 23:13
Spurning að þú laxerir elskan...
Heiða Þórðar, 13.1.2008 kl. 23:52
Það er gott að þér líður vel í þessu húsi hafðu það gott mín kæra.
Kristín Katla Árnadóttir, 14.1.2008 kl. 09:47
Nú er ég sammála þér. ''Heima'' er tilfinning.
Jóna Á. Gísladóttir, 14.1.2008 kl. 13:23
Já en er búið að mála? ´Má ég ekki koma líka með Dúu og Völuskotti?
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 16:09
Auðvitað máttu það Nenna litla
Guðný Anna! Alla daga milli fimm og sjö! :)
Já Jóna! "Heima" er tilfinning og hún er góð þegar hún er fundin
Hrönn Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 19:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.