10.1.2008
Af austfirðingum og öðrum fiðringum
Sótti mömmu og pabba á Keflavíkurflugvöll í nótt í leiðindaveðri og skafrenningi á heiðinni. Var komin upp í rúm kl. fimm í morgun og vaknaði frekar grámygluleg klukkan átta. Meilaði þá á minn nýja vinnuveitanda skilaboð þess efnis að ég væri bara ekki orðin nógu falleg til að takast á við daginn og yrði að fá að sofa aðeins lengur. Hann taldi engin vandkvæði á því þannig að ég skrölti aftur upp í rúm og svaf eins og klessa til klukkan tíu. Ójá - það er ekki ekki öllum gefið að hafa verið reknir úr einu starfi fyrir nýtt og betra
Hringdi í Möggu í gær, gjörsamlega í panikattakki, vegna yfirvofandi stefnumóts við austfirðinginn og spurði hana um hvað ég ætti eiginlega að tala við hann!!!??? Hún taldi að ég mundi ekki eiga í neinum vandræðum með að finna umræðuefni, en ég skyldi lauma því að að það kæmi ekki til greina að ég flytti austur í afdali og bætti við í lok símtals þegar ég var svona um það bil að jafna mig, að ég skyldi bara vera í stuttu pilsi, bara ekki of stuttu, og flegnum bol, bara ekki of flegnum, með rauða Bed Head varalitinn!
Í dag skannaði ég svo fataskápinn og uppgötvaði að ég á bara flegna boli - sem sumir kalla druslulega - og stutt pils. Það er skemmst að segja frá því að austfirðingar eru víst voða hrifnir af stuttum pilsum og flegnum bolum - nema það hafi verið varaliturinn og hann ætlar að koma við aftur, næst þegar hann er á ferðinni og vera þá líka í stuttu pilsi.......
Hann var annars, svona án gríns, ósköp ljúfur og jafnskemmtilegt að tala við hann "læf" eins og í síma, þannig að ég náði mér fljótlega á strik........
Nú er Dr. House á heiðinni, vonandi í betra veðri en ég í nótt - spurning hvort ég sofna nokkuð út frá honum!
pís
Athugasemdir
Ætlar hann líka að vera í stuttu pilsi sem sagt?
Bryndís R (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 21:11
Austfirðingar eru fínir, er sjálf gift einu Austfjarðatrölli (hann vill samt ekki ganga í stuttu pilsi)
Huld S. Ringsted, 10.1.2008 kl. 21:13
Austangolan á mig blés,
um mig sælan hríslaðist
skalf og hristis nið'r í hné
gæinn á mig blístraði. Knús og klús og vertu dús.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.1.2008 kl. 21:26
ánægð með þig - alltaf gaman að fá strákana í heimsókn eftir símadaðrið - sérstaklega ef vel kengur að spjalla við þá live
Rebbý, 10.1.2008 kl. 22:27
Haba, haba, eitthvað tjútt á leiðinni? Úje, ég bíð spennt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.1.2008 kl. 22:35
Ó...bara hasar ?
Eins gott að hann mætti ekki í flegnum bol og pilsi
Ragnheiður , 11.1.2008 kl. 01:18
ótrúleg !
BLESS
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 06:57
úlalalala...og spennan magnast.......
Fanney Björg Karlsdóttir, 11.1.2008 kl. 09:08
Nú fer að færast fjör í leikinn...... Bíð spennt eftir framhaldinu. Ég get talað af reynslu um austfirska karlmenn - ef þig vantar upplýsingar, tja... eða leiðbeiningar!!
Ingibjörg Gunnarsdóttir, 11.1.2008 kl. 09:17
Áttu manual Ingibjörg?
Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 10:02
Ég er nú að verða spennt bíð eftir framhaldinu.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.1.2008 kl. 11:09
Það kemur ýmislegt gott af austfjörðum...m.a. ÉG!!!
SigrúnSveitó, 11.1.2008 kl. 12:53
Segðu Flórens
Hrönn Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 18:09
set inn rúgbrauðsuppskriftina um helgina
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 20:16
Já, það er margt fallegt sem kemur af austfjörðum .... ekki spurning
www.zordis.com, 11.1.2008 kl. 23:02
Þetta með skafrenninginn á heiðinni, á leiðinni á flugvöllinn.: Hvar er eiginlega þessi heiði sem allir eru alltaf að tala um? Verð að fara láta kíkja á hæðarmælinn í mér. Er ekki alveg að ná þessari "heiði". Ertu kannski að tala um Hellisheiði? Sorry, hélt það væri Miðnesheiðin. Ef þú hefur orðið vör við einhverja bugðu á leiðinni rétt áður en á flugvöllinn var komið, blessuð sendu mér þá GPS punktana, svo ég geti sett þá í plotterinn. Búinn að leita að þessu í mörg ár.
Halldór Egill Guðnason, 12.1.2008 kl. 04:29
Hellisheiðin að sjálfsögðu Halldór!! Segi nú eins og þú - eru aðrar Heiðir á leiðinni? Er ekki Reykjanesið á jafnsléttu?
Takk fyrir það Birna Dís
Hrönn Sigurðardóttir, 12.1.2008 kl. 07:15
Ji, er bara allt að gerast hjá þér og ég missi af öllu? En spennandi! Hlakka til að fylgjast með jarðhræringunum á milli landshluta!!
Hugarfluga, 12.1.2008 kl. 14:18
så spennende min kjære....
Jóna Á. Gísladóttir, 12.1.2008 kl. 14:58
.... og hvernig er svo fiðringurinn..... er að urlast úr spenningi hér.......
Fanney Björg Karlsdóttir, 12.1.2008 kl. 20:33
...ooo en spennadi!
Marta B Helgadóttir, 12.1.2008 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.