6.1.2008
Þrettándagleði?
Ég er alveg hreint hrikalega fúl akkúrat núna.
Helgin byrjaði ágætlega. Tók til, fór út með hvuttaling, hitti konu sem sagðist lesa bloggið mitt, og það kemur mér svosem ekki á óvart, ég meina hver les ekki bloggið mitt? Fór síðan á ágætan bloggvinahitting í gær, hitti Sigrúnu sveitamær í fyrsta sinn og var ekki svikin af því. Hitti líka Dúu dásamlegu og var hreint ekki svikin þar heldur. Dúa kveikti m.a. í jólatrénu á Austurvelli, vinabæjargjöf Noregs ef ég man rétt! Hún þrætti að vísu fyrir það...... Þær standa undir öllu sínu stelpurnar, enda var ég búin að lofa að koma ekki með neina perra.......... Hitti líka fullt af öðru fólki sem ég hef aldrei séð áður, er ekki frá því að það hafi verið að svindla sér inn..........
Átta mig samt ekki alveg á því af hverju þeim datt í hug, stelpunum, að ég mundi endilega bjóða perrum! En þið? Nei, hélt ekki........
Fór í dag og kvaddi jólin mjög persónulega hjá frænku minni. Hitti þar lungann úr fjölskyldunni móður mín megin frá og var það vel. Alltaf gaman að hitta gott fólk. Var að vísu lofað rjómatertu sem ég var náttúrulega svikin um! Hvað þarf kona að gera til að fá rjómatertu um jólin?? Maður spyr sig! Og ekki voga þér að segja Dúa að ég hafi ekkert við rjómatertu að gera!! Ég er EKKI feit! Og þó svo væri, hvað er þá að því að vera feitur? Af hverju þurfa allir að vera mjóir? Hvað er fallegt við það? Ha??
Endaði svo daginn, og þar með helgina, á því að ergja mig allsvakalega og fékk svosem alveg útrás fyrir það líka. Ég meina aldrei að láta gott pirr ónotað! Ekki satt?
Mottó kvöldins! Aldrei er gott pirr ofnotað!
Athugasemdir
Láttu mig vita það vúman, pirr eru stórlega vanmetin. Arg og pirr og meira pirr.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.1.2008 kl. 22:01
Segi það nú líka. Hver les ekki bloggið þitt
Takk fyrir frábæra skemmtun í gær
Bryndís R (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 22:02
Oooohhh, elskan, það var sko snilld að hitta þig! Og TAKK fyrir að leyfa mér að koma með, og fyrir að halda ekki að ég væri of mikill perri...!!
Pirr...uss, lífið er of stutt fyrir pirr...!!
Knúzzzzzzzzzzzz............
SigrúnSveitó, 6.1.2008 kl. 22:13
gaman að heyra að hittingurinn hafi verið góður í gær..... sjálf komst ég ekki sökum anna............ en ertu að meina að þú hafir ekki fengið neina rjómatertu öll jólin..... o m g...... hvað gera konur við því.......
Fanney Björg Karlsdóttir, 6.1.2008 kl. 22:16
Flórens! Hver sagði þér að þú værir ekki perri?? Ég veit, að lífið er of stutt fyrir pirr, þess vegna kem ég þeim út allsnarlega......
Takk sömuleiðis Bryndís! Flottar myndir sem þú tekur!!
Jenný! Æ am telling jú..............
Hrönn Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 22:17
Ég veit ekki Fanney!!! Ergja fyrrum eiginmenn?
Og skammast´ín svo að taka einhver afmæli fram yfir mig..........
Hrönn Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 22:18
Takk fyrir síðast mín kæra. Hvernig er hjartað í Ljóshjartanu núna, eftir allar skothríðarnar í kvöld, meiri lætin hér í bæ. Hafðu það gott mín kæra og við sjáumst.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 23:03
Jahá... nú er bara eftir að vita hvort maður fái boðskort í brúðkaupið.
Jóna Á. Gísladóttir, 6.1.2008 kl. 23:26
Takk sömuleiðis Ásdís!
Dúa! Þú færð sko EKKI að kalla mig Pétur!!
Jóna! Auðvitað verður þér boðið.........
Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 00:05
hér á bæ fær pirrið sko að fjúka um leið og það byrtist ef það byrtist alveg óþarfi að geyma svona hluti
Dísa Dóra, 7.1.2008 kl. 08:26
kallar þú þetta að vera pirruð?? þú ert nú meiri engillinn
Björg F (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 10:18
ég veit ekki hvort ég á að þora að nefna það, salt í sárin og allt það - en ég fékk sko meiri háttar rjómatertu um jólin - sjá bloggið mitt...
Guðrún Helgadóttir, 7.1.2008 kl. 11:44
Verð sífellt sárari yfir að hafa sofið af mér bloggvinahittinginn. Gengur vonandi betur næst og þá skal ég gefa þér rjómatertu Hrönn mín.
Steingerður Steinarsdóttir, 7.1.2008 kl. 12:13
Besta ráðið til að fá tertu hjá fjölskyldunni er að koma fyrir áramót því að eftiáramót þá fara allir í MEGRUN Annars vitna ég í vísurnar sem ég sendi síðast.
Þar eru sauðasíðurnar þverhandarþykkar, mörinn nógur og tólgarskildirnir hlemmstórir.
Gunnar Páll Gunnarsson, 7.1.2008 kl. 15:04
Ég var ekki smásvekkt að hafa ekki komist til að hitta ykkur en ég kem sko alveg örugglega næst.
Huld S. Ringsted, 7.1.2008 kl. 20:29
Ljós til þín
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 21:00
þrettándakveðjurnar, mikið hefur nú verið gaman að hitta allar þessar kjéddlingar ...... kvitt og knús, mér finst Pétur flottara en að vera kallaður Hranni þú skvísulegi svanni .....
www.zordis.com, 7.1.2008 kl. 21:11
Ég var nú að ærast það var sprengt svo mikið þetta var eins og gamlárskvöld. Það var gott að þú skemmtir þér vel Hrönn mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2008 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.