10.12.2007
Snilldardagur
Minn nýji atvinnurekandi heimsótti mig í morgun. Hann dáðist að sjálfsögðu að nýja pilsinu mínu en vildi samt ekki leika hlutverk brúðgumans þegar ég sagði honum að þetta væri brúðkaupspilsið mitt........ Við fórum yfir verkefnastöðuna sem lofar ansi góðu! Ég sökkti mér síðan á kaf í tölur - á milli þess sem ég dáðist að sjálfri mér og pilsinu í hvert sinn sem ég átti leið fram hjá spegli
Mundi allt í einu eftir því að ég steingleymdi að segja frá einum aðalviðburði Danmerkurferðarinnar!!!! Ég mætti Nikolaj - og ekki segja mér að þið munið ekki eftir þáttunum um Nikolaj og Julie - hann var að tala í símann, ábyggilega við Julie og hann leit upp og brosti til mín um leið og við mættumst Ég verð máttlaus í hnjánum bara við endurminninguna, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég brosti gáfulega til baka, var sem betur fer með varalitinn - þið munið Bed head eða Bad hair eða hvað hann nú heitir, það bjargaði heilmiklu.................................
Regnið lemur rúðurnar og ég er á leið upp í rúm að lesa og hver veit, kannski dreymir mig Nikolaj!
Góða nótt
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Mér finnst það tryllingslega fyndin tilhugsun að þú gangir mögulega um í jólaskartinu og blikkir sjálfa þig um leið og þú labbar fram hjá spegli.
Sé þig í blúndupilsi og náttkjakka voða kósí með slæmahárdagsvaralitinn. OMG
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.12.2007 kl. 23:42
Hehehehe en úbbs hver er Nikolaj
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.12.2007 kl. 00:22
Já Hrönn mín hver er Nikolaj ég kem því ekki fyrir mig.
Kristín Katla Árnadóttir, 11.12.2007 kl. 09:35
Hva! Hverslags gullfiskaminni er þetta? Nikolaj og Julie eru auðvitað ógleymanleg
Guðrún Helgadóttir, 11.12.2007 kl. 10:36
Ógleymanleg - algjörlega
Hrönn Sigurðardóttir, 11.12.2007 kl. 10:45
OMG!! Hittirðu Nikolaj!?? Ohh hann er svo mikið æði með þessi skökku augu og kækinn að loka alltaf öðru auganu þegar hann talar.... (var þetta of mikið?) ;)
Annars eyðilagðist pínu álitið á honum eftir að hafa séð hann í aðeins of mörgum auglýsingum ... að auglýsa eitthvað voða ómerkilegt og langt fyrir neðan hans virðingu ... þar að auki eru Danirnir ekki alveg sterkastir í auglýsingagerð.
Komdu til Árósa og ég skal fara með þér á kaffihúsið þar sem við Linda systir hittum Friðrik prins! Ó svo fallegur...
knús. Erla.
Erla Björg (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 12:45
Erla........!!!!! Meinarðu að hann hafi ekki verið að blikka mig??? Er þetta bara kækur????
Dagurinn ónýtur! - Kem til Árósa og við blikkum Prins Frederik í staðinn
Hrönn Sigurðardóttir, 11.12.2007 kl. 12:49
vóóó...var þetta Prins Fredrik sem ég rakst á í Árósum á dögunum..... mér fannst ég kannast við kauða....
Fanney Björg Karlsdóttir, 11.12.2007 kl. 15:31
Hver er Nikolaj?
Huld S. Ringsted, 11.12.2007 kl. 17:32
Ú lala ég hefði viljað vera í þínum sporum. Nikolaj er sætastur.
Steingerður Steinarsdóttir, 12.12.2007 kl. 13:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.