Jæja! Þá er ég búin að taka til í mínum húsum. Tók þá afdrífaríku ákvörðun að henda gömlum ónýtum skóm.
Nú eru bollurnar að hefast og maturinn bíður þess að verða eldaður. Helgin framundan með öllum sínum töfrum. Ég ætla að sílíkonast aðeins um helgina. Klára herbergið og bílskúrinn - vonandi......
Við Ljúflingur ljónshjarta - sem er að vísu með óþekkari hundum þessa dagana, ábyggilega á gelgjunni...... - hittum agalega sætan mann í gærkvöldi þegar við tókum kvöldsprænið. Ljónshjartað vildi endilega heilsa aðeins upp á hann og þegar ég gerði mér grein fyrir því hvað maðurinn var myndarlegur, leyfði ég honum það. Alltaf að nýta öll tækifæri til að daðra við sæta stráka! Það er bara svoleiðis........ Hver veit, kannski hittum við hann aftur í kvöld?
Talandi um sæta stráka þá ætlar Þorvaldur Þorsteinsson að halda erindi á viku símenntunar í næstu viku. Þar ætla ég að vera. Kem kannski ekki til að heyra orð af því sem hann segir. En það er líka aukaatriði.......
Vona að þið eigið góða helgi
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Gæludýr | Breytt s.d. kl. 18:53 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
Var einmitt að klára bókina við fótskör meistarans eftir þorvald núna rétt í þessu...sé fyrir mér allar sögupersonurnar sem ljótar en það hjálpaði að hugsa þess meira um hver skrifaði þær.hehe. Góða skemmtun á kvöldkarlagöngunni og sætramannaglápinu í vikunni.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.9.2007 kl. 19:08
Hrönnsla ég öfunda þig af því að fá að horfa á Þorvald. Mér væri sama þó hann segði ekki orð (hvernig heldurðu að mér yrði við ef einhver setti svona á prent um konu? Muha). Nei annars hann er flottur rithöfundur og afskaplega hm.. laglegur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2007 kl. 19:28
Gangi þér vel í kvöldgöngunni (good man hunting)
Öfunda þig ekkert af því að hitta Þorvald, ekkert langt síðan ég hitti hann í Bónus
Huld S. Ringsted, 21.9.2007 kl. 20:01
Það er nú meiri dugnaðurinn alltaf á þér , mikið væri gaman að hitta Þorvald.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2007 kl. 20:20
Góða helgi elsku Hrönn mín, og segðu Ljónshjartanu að hann sé duglegur hundur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 20:32
Stelpur ég myndi elta manninn um alla búð ef ég hitti hann i Bónus bara til að horfa enn meira sko
Marta B Helgadóttir, 21.9.2007 kl. 21:26
Ef ég hitti hann úti í búð, mundi ég kaupa allt það sama og hann, án þess að taka eftir því
Heppin Huld
Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 21:52
þorvaldur er bæði klár, flottur og skemmtilegur
ætla að benda honum á þetta blogg, hann verður ánægður
alheimsLjós til þín
steina
Afram stelpur !!!
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 22:04
Ég spjallaði nú bara við hann, var sosem ekkert að spá í því hvað kallgreyið var að versla! Hann er ágætur
Huld S. Ringsted, 21.9.2007 kl. 22:06
Ég meinti Þorvald.
Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2007 kl. 22:52
*koss*
Hugarfluga, 21.9.2007 kl. 23:13
Hva.... er eitthvað allsherjar"Þorvaldaræði" í gangi..... maður ætti nú kanski að fara að kíkja á manninn.....í hvaða búð verslar hann segiði...
Fanney Björg Karlsdóttir, 21.9.2007 kl. 23:28
Ég er alveg laus við svona Þorvaldaræði og hef aldrei lesið neitt eftir hann, er ég fötluð eða hvað??
Ásdís Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 00:07
Bíddu bíddu....hver er Þorvaldur? Má ég koma með?....knús til þín kæra Hrönnslan mín.
Heiða Þórðar, 22.9.2007 kl. 00:14
ég var bara að djóka !!!
knus steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 07:36
Segi það nú! Aldrei má ég eiga mína menn í friði. Þarf ykkur alltaf að finnast sömu menn og mér fallegir?
House! Þorvaldur! Næst vel ég mér bara einhvern óþekktan.....
Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 08:04
já og hafð´ann ljótan......
Fanney Björg Karlsdóttir, 22.9.2007 kl. 11:15
hahahahahahha Ljótan gæti ég sætt mig við en heimskan aldrei!!! Æ dónt læk sillí pípól
Hrönn Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.