Fórum út að ganga í myrkrinu í morgun.
Gengum upp með á eins og venjulega. Allt gekk eins og í sögu til að byrja með en þegar við vorum stödd fyrir aftan nýbyggingu sjúkrahússins stökk stúfurinn allt í einu fram fyrir mig, sperrti sig allan og ýfði og urraði í áttina að byggingunni. Ég beygði mig niður að honum og sagði honum að láta ekki svona, það væri enginn vaknaður nema við.......
Hann lét sér ekki segjast og hélt áfram að urra yfir óræktina. Allt í einu gekk hann tvö skref áfram og gjammaði illyrmislega! Um leið slökknaði á ljósi sem var þarna á bak við!!
Þá var mér nú nóg boðið. Setti hann í tauminn og teymdi hann burt. Hugrekkið náði nú ekki lengra hjá mér. Ég hugsaði sem svo að ef einhverjir væru þarna að stela verkfærum þá skyldu þeir allavega ekki ná að berja mig með hamri.......
Var svo að segja einkasyninum hamfarasöguna áðan þegar hann kom heim. Hann horfði á mig smástund alveg gáttaður og sagði svo: "Ég vissi ekki einu sinni að klukkan YRÐI hálfsex á morgnana........"
Ég flissaði og gleymdi hvað ég hafði verið í mikilli hættu í myrkrinu.
Pís plís
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Glæpamál, Gæludýr | Breytt s.d. kl. 21:54 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Eldri færslur
2021
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Spurt er
Tenglar
Uppskriftir
- Bollur eða brauðlengjur
- Kærleiksbollur
- Gróft brauð
- Bananabrauð
- Kryddbrauðið hennar Jónínu
- Kryddbrauð
- Lífsins brauð
- Fyllt brauð
- Gömlu góðu kanelsnúðarnir hennar mömmu
- Hafrakex
- Skinkumyrjuhorn og pizzasnúðar
- Ostaskonsur
- Muffins
- Eplakaka Mörtu Smörtu ;)
- Rabbarbarapæ
- Epla og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka mótmælanda efnahagsástandsins ;)
- Vatnsdeigsbollurnar hennar ömmu
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Biluð hollusta Hjónabandssæla
- All bran kökur
- Brynhildur Delisíus
- Gillaður humar
- Salat númer eitt
- Gulrótarsalat með dassi af fortíðarþráhyggju
- Gúllassúpa
- skólastjórasúpa
- Grænmetissúpa Zordísar
- Fylltar kjúklingabringur Uppskrift að góðu kvöldi
- Fljúgandi Jakob með stílbragði
- Kjúklingaréttur Thai Pride
- Ungnauta - innra læri
- Fiskréttur í ofni
- Grænmeti í ofni
- Ratatoullie a la maison
Vefsíður
Færsluflokkar
- Afmæli og stórhátíðir
- allt annað
- amatörar
- Bloggar
- Bækur
- Draugasögur
- Dútl heima við
- Dægurmál
- fagmennska
- Ferðalög
- Fordómar og spéhræðsla
- Galdrar og töfrar
- Glæpamál
- Grill
- Grobb
- Gæludýr
- gæludýr og dýrafát
- hausti fagnað
- hugsanleg húsbönd
- Iðnaðarvinna og verkir
- Íþróttir
- íþróttir og útivist
- Kvikmyndir
- Launráð og fyrirsát
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- málningarvinna
- Menning og listir
- menn og málleysingjar
- mótorhjól og akstursíþróttir
- Óbyggðir Vestfjarða
- Sjónvarp
- Skordýr
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- svefn og síþreyta
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Veikindi
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- öfugir fordómar
- Ölæði og ólæti
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Marta B Helgadóttir
- www.zordis.com
- Anna Einarsdóttir
- Ragnheiður
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- SigrúnSveitó
- Guðný Anna Arnþórsdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Solla Guðjóns
- Gunnar Páll Gunnarsson
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Brattur
- Garún
- Sigrún Jónsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Halldór Egill Guðnason
- Þröstur Unnar
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Dúa
- Hagbarður
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Bullukolla
- Einar Indriðason
- Steingerður Steinarsdóttir
- Rebbý
- Vilma Kristín
- Dísa Dóra
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ía Jóhannsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Hugarfluga
- Bergljót Hreinsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Bjarni Harðarson
- Marinó Már Marinósson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Steingrímur Helgason
- Þórbergur Torfason
- Ólöf Anna
- Brúðurin
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Heiða B. Heiðars
- Víðir Ragnarsson
- Laufey Ólafsdóttir
- Róbert Tómasson
- Ólafur fannberg
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gulli litli
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Linda litla
- Ágúst H Bjarnason
- Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Svala Erlendsdóttir
- Tína
- Markús frá Djúpalæk
- Gudrún Hauksdótttir
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
Athugasemdir
úfff... ekki skemmtilegt að heyra........er nokkuð komið tæm á "meis" í vasann
En svo er það einkasonurinn.... sjaldan fellur eplið langt frá eikinni...hann er greinilega með sama húmor og móðirin...
Fanney Björg Karlsdóttir, 11.9.2007 kl. 19:08
Held það sé ekki pláss í vösunum fyrir meis..... verð líklega bara að halda áfram að æfa hlaup og vona að hinir séu reykingamenn
Já við erum fyndin mæðginin, ef við byggjum í Englandi væri eftirnafn okkar líklega Funny
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2007 kl. 19:42
Þú verður greinilega að vera vopnuð í þessum eldsnemmamorgungöngum þínum! Aldrei að vita hvað leynist.
Huld S. Ringsted, 11.9.2007 kl. 19:42
Drengurinn er með mikla hæfileika í gamanmálum. Krúttskí Djóns.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2007 kl. 19:48
ÚFF ég hefði verið hrædd en ég gat ekki annað en farið að hlæja þið eru bæði fyndin mæðgin. knús
Kristín Katla Árnadóttir, 11.9.2007 kl. 20:27
Klukkan hálfsex í morgun staulaðist ég á klóið til að pissa og settist við hliðina á setunni og pompaði á gólfið. Það var mín morgunleikfimi.
Hugarfluga, 11.9.2007 kl. 20:45
hahah alveg sé ég þig fyrir mér litla fluga Verulega smart
Hrönn Sigurðardóttir, 11.9.2007 kl. 21:15
Morgunleikfimi er ekki til í mínum reynsluheimi stelpur mínar, ég er morgunsvæf með eindæmum.
Sonurinn góður!
Marta B Helgadóttir, 11.9.2007 kl. 23:45
Vissi ekki einu sinni að klukkan YRÐI hálf sex á morgnana hahahaha.... ótrúlega fyndinn. Farðu nú varlega, það er aldrei að vita hver leynist i myrkrinu Hrönn mín. Gæti verið að strákurinn hefði bjargað þér í þetta sinn, með geltinu sínu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2007 kl. 10:23
Þegar ég kem úr mínu labbirí-i ferð þú á stjá! Er ekki rigning hjá þér? Hvurslags.....spurning með hárlakk sem vopn.
Eigðu annars góðan dag mín kæra.
Heiða Þórðar, 12.9.2007 kl. 12:39
Ljósið sem hvarf?; Ég er hér enn......
Heiða Þórðar, 12.9.2007 kl. 12:42
Eru ekki bara einhverjir útlendingar sem vinna þarna og fá ekki aðra gistingu. Sonur þinn er mér að skapi, hálfsex er NÓTT og óþarfi að telja það í tímum
Ásdís Sigurðardóttir, 12.9.2007 kl. 22:12
hahahaha feeeeerlega góður... BTW hvað eeeeertu að gera úti kl. hálfsex á morgnana??? Er það ekki óþarflega snemmt
Jóna Á. Gísladóttir, 12.9.2007 kl. 23:13
Þið hvutti á göngunum ykkar eru algerlega ómissandi þáttur bloggtilverunnar. Ég er að verða háð þessum sögum þínum. Ég er nú sammála ofangreindum (greindu) konum, að hálfsex er nú eiginlega mið nótt og stundum nýbyrjuð nótt.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.9.2007 kl. 23:23
"Ég vissi ekki einu sinni ad klukkan yrdi half sex a morgnana"................"What can I say? Ad eiga eitt svona eintak er bara !!!!!!! Ces´st la vive!!
Halldór Egill Guðnason, 14.9.2007 kl. 00:00
frábært svar, flottur og fljótur að hugsa eins og þú !
AlheimsLjós til þín og fallega helgi !
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.9.2007 kl. 11:06
aldrei er ég á fótum kl hálf sex nema ég sé ekki farin að koma mér í svefninn ..... á að banna svona fótferðatíma
Rebbý, 16.9.2007 kl. 12:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.