ójá...

.... lífið er yndislegt. Í kvöld ætlum Við Magga að  hlaupa í Icelandairhlaupinu, eða airport to airport hlaupinu eins og ég kýs að kalla það Tounge Þar er hlaupið í kringum Reykjavíkurflugvöll. Stefni á að bæta tímann síðan í fyrra...... hlaup

Hér á landi er staddur danskur vinur minn sem er hlaupagikkur mikill. Ég bauð honum að hlaupa með okkur og auðvitað stóðst hann ekki mátið - ég meina hver getur sagt nei við því að hlaupa með mér? Grin Honum þótti þetta að vísu aðeins of stutt, enda er hann montrass,  en ég sagði honum að við systurnar værum vanar að fara fjóra hringi og við mundum EKKI bíða eftir honum. Nema sko ef hann kæmi fyrstur í mark - þá skyldum við doka og sækja dolluna með honum - je ræt........

Ætliði ekki öll að koma og hvetja mig? Góla á hliðarlínunni - gó gó Hrönn. Alveg þar til ég stoppa og spyr ykkur fremur hran(n)a(r)lega: Eruði að segja að ég sé gogogirl?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

oooohhh, ég væri til í að hlaupa með þér...en hnéð er víst ekki komið í hlaupaform enn.  Var orðinn hinn mesti hlaupagarpur þegar liðþófinn í hnénu á mér rifnaði fyrir 1½ ári síðan.  Ég horfi á björtu hliðarnar, ég er farin að geta hjólað þannig að hlaupið á eftir að koma inn líka (fór í aðgerð í 2. feb.).

Gangi þér vel og ég hleyp með þér og baunanum í huganum.  Du må hilse

SigrúnSveitó, 3.5.2007 kl. 10:27

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

tak for det.....

Hrönn Sigurðardóttir, 3.5.2007 kl. 11:14

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Trúðu mér ég hleyp með þér í huganum.  Svo langt geng ég ekki fyrir marga.  Mundu hás.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 16:58

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ó mæ dog! Ég gleymdi Dr. House. Hvernig gat þetta skeð? Er mér að förlast? Koma þar tvíburaeinkennin upp í mér? Er ég orðin leið á honum? Ætli hann hafi áttað sig á þessu?

Hrönn Sigurðardóttir, 3.5.2007 kl. 23:37

5 Smámynd: Ólafur fannberg

og svo hlaupa.....run run

Ólafur fannberg, 3.5.2007 kl. 23:45

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

run run, rímar við, Hrönn Hrönn

Hrönn Sigurðardóttir, 4.5.2007 kl. 08:31

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég ætla að krossa fingur og tær og elta þig í huganum Hrönn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2007 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband