Skjárinn minn!

Ég held ég sé að verða ástfangin.

Hann er hortugur, hranalegur, gengur við staf, rakar sig sjaldan og kemur öllum í kringum sig í uppnám. Ég er hins vegar sannfærð um að ef ég kafa nógu djúpt næ ég hinum sanna manni. Blámi augna hans er slíkur að það er sem mætist himinn og haf og engin skil á milli. Hann kemur í heimsókn til mín einu sinni í viku og ég bíð alltaf spennt eftir honum, nýgreidd og blíð......Wink

Hann heitir dr. House og hann á eftir að koma til mín 15 sinnum í viðbót. Eftir það verð ég líklega að lifa á minningunum....LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dr. House!!! Maðurinn er löðrandi sexý.  Fimmtán sinnum í viðbót áttu von á honum.  Lífið brosið  við þér Hrönnsla

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.3.2007 kl. 11:33

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ójá.... lífið er dásamlegt

Hrönn Sigurðardóttir, 6.3.2007 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.