Stytta í miðborg Finnlands

Ég var að klára ellefta af þeim tólf prófum sem ég þarf að taka til að vera gjaldgeng í Háskóla Íslands Sideways

Hvern hefði grunað þetta þegar ég lagði með hálfum hug upp í langferð að ígildi stúdentsprófs um áramótin síðustu?

Ég segi nú bara það var eins gott að ég vissi ekki hvað lá fyrir mér þegar ég lagði upp. Ég bara stökk í skaflinn og byrjaði að moka en nú sé ég í gegn. Erfitt á köflum og stundum hefði ég verið við það að gefast upp - ef ég hefði leyft mér það. Ég sagði til dæmis dönskukennaranum að vinnufélagar mínir hefðu áhyggjur af að ég væri að lesa yfir mig og þá finndist þeim ég ekki lengur vidunderlig men kun underlig. Hún flissaði bara.

Í morgun var ég í söguprófi - þar sem áttu að koma og komu m.a. skilgreiningar á hugtökum. Ég er eins og uppflettirit í hugtökum eftir törnina. Fyrir nú utan heimsstyrjöldina fyrri og Stalín með sína bolsévika. Mér hefði aldrei dottið í hug að mér gæti þótt saga skemmtileg. Hélt að þetta væru ekkert nema ártöl og dauðir kallar. Sem það svosem er lika............

....hugsanlega er ég gefin fyrir dauða kalla Tounge Ég var þó við það að örvænta á köflum í áfanganum - sérstaklega þegar ég uppgötvaði að það eina sem sat í mér eftir fyrirlestra kennarans voru mismæli hans, sem ég skemmti mér náttúrulega konunglega yfir, og annað í þeim dúr sem mætti flokka undir þessar ónauðsynlegu upplýsingar... þið vitið... Eins og andlátsorð Von Shcliefen greifa og heimsspeki Stalins. Ég er þó ánægð með að ég náði að tengja úr öllum þessum useless info í það sem skipti máli.

Allavega, ég er búin að skila inn umsókn í HÍ - hvar ég ætla að setjast mjög andaktug á bekk eftir áramót og læra meira og meira. Það eina sem ég ekki skil í rauninni er hvers vegna ég var ekki lööngu byrjuð á þessu. Þetta er svo gaman Wizard 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott hjá þér Hrönn mín innilega til hamingju með þennan áfanga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.12.2012 kl. 16:54

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Dauðir kallar"

Ef ég færi jafn frjálslega með "dauðar kellingar" í styrjöldum síðustu aldar, yrði ég sennilega "settur af".

;-)

Halldór Egill Guðnason, 8.12.2012 kl. 05:30

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

HÍ getur hins vegar ekki með nokkru móti neitað að taka við öðrum eins skörungi og þér.

Ef hafnað.... Austurvöllur, pottar og .......

Halldór Egill Guðnason, 8.12.2012 kl. 05:33

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah Segðu Halldór :)

Hrönn Sigurðardóttir, 8.12.2012 kl. 07:03

5 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Þú ert æði, til hamingju með áfangann, má maður ekki alveg segja það þó að eitt próf sé eftir?

Margrét Birna Auðunsdóttir, 8.12.2012 kl. 16:18

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk :) Jú ég held að það sé alveg óhætt ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 8.12.2012 kl. 17:08

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 Vá hvað þú ert dugleg

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.12.2012 kl. 02:36

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Óborganleg

Marta B Helgadóttir, 15.12.2012 kl. 21:08

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Innilega til hamingju með áfangann.

Marta B Helgadóttir, 15.12.2012 kl. 21:08

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég er miklu eldri en þú Hrönn mín og er dottin í þennan fasa líka, að læra og læra meira og hafa virkilega gaman að.

Væri ekki vel til fundið að stofna sérstakt heimilislegt elliheimili fyrir bókaorma sem hafa gaman af því að mennta sig fram í rauðan.. bara svona til að halda hópinn í framhaldinu  

Kennararnir þyrftu líklega að vera nokkuð yngri, bara sonna uppá minnisstöðvarnar að gera

Marta B Helgadóttir, 15.12.2012 kl. 21:13

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk takk :)

Rosalega finnst mér þetta góð hugmynd Marta :)

Hrönn Sigurðardóttir, 17.12.2012 kl. 14:57

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Og við verðum alveg orðnar vanar yngri kennurum þegar við náum þeim áfanga að verða antikbækur

Hrönn Sigurðardóttir, 17.12.2012 kl. 14:59

13 Smámynd: Marta B Helgadóttir

:-)

Marta B Helgadóttir, 18.12.2012 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband